Jólin, jólin, jólin koma brátt

Alls konar jóla­skemmtun er í boði næstu tvær vik­urnar.

Las Vegas Christmas Show

Hvar? Gamla bíó

Hvenær? 1., 2., 3. og 4. des­em­ber

Miðaverð? 8.400 (tón­leikar) – 16.900 kr. (tón­leikar og kvöld­verður)

Geir Ólafsson kemur nú fram enn eitt árið með jólatón­leik­ana sína Las Vegas Christmas Show ásamt gesta­stjörnum og bæði íslenskum og erlendum hljóð­færa­leik­urum. Sjötta árið í röð sem tón­leik­arnir voru haldnir var upp­selt og þess vegna er núna bætt við fleiri dag­setn­ingum.

Þórir Bald­urs­son verður hljóm­sveit­ar­stjóri en einnig mætir Don Randi og stór­sveit hans.


 Jólaljós og lopasokkar

Hvar: Hamra­borg Hofi, Akureyri

Hvenær: 2. des­em­ber kl. 20

Miðaverð: frá 5.900 kr.

 Söng­konan Jónína Björt Gunn­ars­dóttir heldur sína fyrstu jólatón­leika í Hofi í ár ásamt hópi lista­fólks. Jólaljós og lopa­sokkar eru kósí og hátíð­legir jólatón­leikar með öllum okkar upp­á­hald­s­jóla­lögum í bland við minna þekkt jóla­lög. Með Jónínu eru Vil­hjálmur B. Bragason, Óskar Pét­urs­son, Ívar Helgason, Söng­hóp­ur­inn Rok, Anita Rós Þor­steins­dóttir og Kata Vign­is­dóttir. Hljóm­sveit­ina skipa: Daníel Þor­steins­son á píanó, Stefán Gunn­ars­son á bassa, Val­garður Óli Ómarsson, Daníel Andri Egg­erts­son á gítar og Valmar Valjaots á fiðlu. Fram­leið­andi: Rún Við­burðir.


Síðustu dagar Sæunnar

Hvar? Borg­ar­leik­húsið. Litla sviðið

Miðaverð? 7.200 kr.

Allir deyja – þar á meðal Sæunn. Nýtt verk eftir Matthías Tryggva Har­alds­son. Sæunn sem nennir ekki að prjóna. Sæunn sem sér eftir því að skapa ekki fleiri minn­ingar. Sæunn sem ríg­heldur í þær minn­ingar sem þó fékkst tími til að skapa. Sæunn sem veit ekki hver fær að eiga pers­neska teppið sem þau hjónin keyptu '97. Sæunn sem spyr sig hvenær son­ur­inn kíki við. 

„Þetta leik­rit fjallar um dauða og dauð­leika sem er við­fangs­efni sem ég fékk alveg óvart á heil­ann fyrir nokkrum árum. Það er hressandi að tala og hugsa um dauð­ann vegna þess að maður endar yfir­leitt á því að hugsa um lífið og brosa. Ég á ömmu sem er að miklu leyti inn­blástur að Sæunni. Þær kenna manni báðar að hvers­dags­leik­inn er í senn erf­iður, áríð­andi og dýr­mætur, Sæunn og amma mín,“ segir höf­undur verks­ins, Matthías Tryggvi Har­alds­son. (Mynd: Grímur Bjarna­son.)


Diddú – Jólastjarna í 25 ár

Hvar? Harpa, Eldborg

Hvenær? 4. des­em­ber

Miðaverð? 4.900–13.990 kr.

„Það var snemma árs 1997 að Jón Ólafsson, eig­andi Skíf­unnar, bauð mér að syngja sól­ó­jóla­plötu,“ segir Diddú. „Ég sló til og mér til halds og trausts við verk­efnið voru ekki minni kappar en Björgvin Hall­dórs­son, sem sá um alla fram­kvæmd, og Þórir Bald­urs­son, sem útsetti öll lögin. Hófst nú vinna við að velja réttu lögin, sem end­uðu lang­flest af  erlendum upp­runa. Sum lag­anna voru vin­sæl og elskuð jóla­lög sem frá­bærir texta­smiðir íslenskir höfðu þegar sett í stemn­ings­bún­inga. Önnur lög voru minna þekkt sem jóla­lög en voru klædd rétta jóla­and­anum. Upptökur fóru fram um miðjan júlí í stúdíó Sýrlandi. Ég var nýbúin að eign­ast yngstu dóttur mína, sem var aldrei langt undan meðan upp­tökur fóru fram. Útkoman varð mest selda jóla­plata Íslands. Friðriki Ómari tón­leika­hald­ara fannst orðið tíma­bært að gera jóla­plöt­unni „Jóla­stjarna“ almenni­leg skil. Ég tók hann á orð­inu þar sem ég hef aldrei sungið öll lögin áður á tón­leikum. Öllu verður tjaldað til á tón­leikum 4. des­em­ber í Eldborg þar sem mér til full­tingis verða leynig­estir, kór, strengja­sveit, hljóm­sveit og kjólar.“


Ævintýri í jóla­skógi

Ævintýri í Jólaskógi – Vasaljósaleikhús

Hvar? Guð­mund­ar­lundur

Hvenær? 26. nóv­em­ber–30. des­em­ber

Miðaverð? 3.300 kr.

Ævintýri í Jóla­skógi er leik­sýn­ing þar sem áhorf­endur ganga í litlum hópum um skóg­inn í Guð­mund­ar­lundi vopn­aðir vasa­ljósum og hitta á ferðum sínum per­sónur úr jóla­fjöl­skyldu okkar Íslend­inga, þau Grýlu, Leppalúða, jóla­svein­ana og trölla­systk­ini þeirra. Ferða­lagið hefur verið varðað með jólakúlum, luktum og öðru jóla­skrauti svo áhorf­endur eigi það ekki á hættu að vill­ast í skóg­inum. Eftir stutta göngu koma áhorf­endur að fyrsta svið­inu. Þar er flutt lítil jóla­saga um ævin­týri trölla­fjöl­skyld­unnar, lífið í Grýlu­helli og jól fyrri tíma. Verkið er tæpar tíu mín­útur í flutn­ingi og þegar því lýkur heldur hóp­ur­inn áfram ferð sinni um skóg­inn. Litlu innar rekast áhorf­endur á fleiri tröll en alls er um að ræða fjórar sögur, sem hver um sig er flutt af ein­hverjum íbúa Grýlu­hellis. Í lokin er öllum boðið upp á heitt kakó og pip­ar­kökur og mynda­töku með jóla­sveini.

„Það er ekk­ert jóla­legra en vasa­ljósa­ganga í Guð­mund­ar­lundi,“ segir Hurða­skellir. „Hún sam­einar eig­in­lega allt það sem er skemmti­legt við jólin. Samvera með fjöl­skyld­unni, jóla­ljósin og sög­urnar, kakó og pip­ar­kökur.“ „Og svo verður manni pínu­lítið kalt á nef­inu og það er líka svo  jóla­legt,“ bætir Skjóða við.


Hall­gríms­kirkja

Aðventu- og jólatónleikaröð Hallgrímskirkju

Hvar?  Hall­gríms­kirkja

Hvenær? 27. nóv­em­ber kl. 17.

Miðaverð? 4.000 kr.

Aðventu- og jólatón­leika­röð Hall­gríms­kirkju hefst fyrsta sunnu­dag í aðventu, sunnu­dag­inn 27. nóv­em­ber næst­kom­andi, kl. 17, með tón­leik­unum „Bach á aðvent­unni“. Þar koma fram Kór Hall­gríms­kirkju, Barokk­bandið Brák, ein­söngv­ar­arnir Harpa Ósk Björns­dóttir sópran, Eggert Reginn Krist­jáns­son tenór og Fjölnir Ólafsson barítón, Elfa Rún Krist­ins­dóttir fiðlu­leik­ari og Björn Steinar Sól­bergs­son org­el­leik­ari. Stjórn­andi á tón­leik­unum er Steinar Logi Helgason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár