Fjárfestingaarmur Samherja kaupir Landsbankahúsið á Akureyri

Fjár­fest­inga­fé­lagið Kald­bakur, sem er í eigu Samherja, hefur gert sam­komu­lag um kaup á Lands­banka­hús­inu í miðbæ Akur­eyrar. Þetta er önnur starfs­stöð Lands­bank­ans á lands­byggð­inni sem Sam­herja­tengdir aðilar kaup á síð­ast­liðnum tveimur árum.

Fjárfestingaarmur Samherja kaupir Landsbankahúsið á Akureyri
Hrifinn af Lands­banka­húsum Svo virð­ist sem Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri Samherja, sé hrif­inn af húsa­kosti Lands­bank­ans en nú er hann við­rið­inn kaup á öðru úti­búi bank­ans á tveimur árum. Mynd: Auðunn Níelsson

Kald­bakur, sem er fjár­fest­ingaarmur útgerð­ar­ris­ans Samherja, hefur keypt Lands­banka­húsið í miðbæ Akur­eyrar fyrir 685 millj­ónir. Skoða á mögu­leika á að stækka húsið í sam­ræmi við teikn­ingar Guðjóns Sam­ú­els­sonar arkítekts, sam­kvæmt Eiríki S. Jóhanns­syni, fram­kvæmda­stjóra Kaldbaks og stjórn­ar­for­manni Samherja. 

Til­kynn­ing um kaupin birt­ist á vef Samherja í dag. Þar segir að til­boð Kaldbaks hafi reynst hæst en húsið var aug­lýst til sölu fyrir um mán­uði síðan. Samkvæmt til­kynn­ingu Samherja bár­ust sjö til­boð í húsið. 

Þetta er ekki fyrsta starf­stöð Lands­bank­ans sem aðilar tengdir Samherja kaupa, því árið 2020 keypti Sigtún, félag í eigu Krist­jáns Vil­helms­sonar og við­skipta­fé­laga hans Leó Árna­sonar, hús Lands­bank­ans á Selfossi. Voru kaupin hluti af þróun „nýs“ mið­bæjar á Selfossi. Líklega eru svipuð áform uppi á Akureyri af hálfu Kaldbaks.

Eiríkur segir að glæða eigi Lands­banka­húsið fyrir norðan lífi og varð­veita það.

„Kaupin á Lands­banka­hús­inu veitir Kaldbaki kær­komið tæki­færi til að taka þátt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er að verða eitthvert auðmannasport að eignast miðbæi út um allt. Það eru skrítin stöðutákn sem að íslenskir ólígarkar vilja koma sér upp til að monta sig af.
    1
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Gleymdu ekki Ríkisstjórn Kötu Jakk,það á nú margur minna
      1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hvaðan fær Samherji alla þessa aura?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu