Íslandsbanki sér fram á að græða meira en hann ætlaði sér í byrjun árs

Leið­bein­andi bil um arð­semi í rekstri Íslands­banka hefur hækkað tals­vert á árinu. Nú stefnir bank­inn á að arð­semi eigin fjár verði á bil­inu 11 til 13 pró­sent. Fyrir þremur mán­uðum var mark­miðið hækkað upp í 10 pró­sent vegna vel­gengni á árinu.

Íslandsbanki sér fram á að græða meira en hann ætlaði sér í byrjun árs
Ánægð Haft er eftir Birnu í til­kynn­ingu frá Íslands­banka að afkoma bank­ans sé gríð­ar­sterk. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Íslands­banki hélt áfram að hagn­ast umfram vænt­ingar á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins, líkt og bank­inn hefur gert allt þetta ár. Í til­kynn­ingu á vef bank­ans kemur fram að hagn­að­ur­inn þessa þrjá mán­uði hafi verið 7,5 millj­arðar króna og arð­semi eigin fjár upp á 14,4 pró­sent. Vegna þessa góða gengis í rekstri bank­ans hefur mark­mið um arð­semi árs­ins verið hækkuð enn á ný, úr því að vera yfir 10 pró­sent í 11 til 13 pró­sent. 

Tekjur bank­ans eru að langstærstum hluta úr reglu­legri starf­semi; það er lán til heim­ila og fyr­ir­tækja og gjöld sem bank­inn leggur á fyrir veitta þjón­ustu. Vaxta­munur bank­ans, sem er mun­ur­inn á þeim vöxtum sem bank­inn lánar á og þeim vaxta­kjörum sem bank­anum sjálfum býðst þegar hann fær sjálfur lánað, hélt líka áfram að aukast. Vaxta­mun­ur­inn var 3 pró­sent á þessu þriggja mán­aða tíma­bili, sam­an­borið við 2,4 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. 

„Gríðarsterk afkoma“

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, var að vonum mjög ánægð með hagnað bank­ans, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. „Afkoma Íslands­banka á þriðja árs­fjórð­ungi var gríð­ar­sterk þar sem hagn­aður var 7,5 ma. kr. og arð­semi eigin fjár 14,4% sem er yfir fjár­hags­mark­miðum bank­ans,“ var haft eftir henni þar. 

Bankinn hagn­ast veru­lega á hækk­andi vaxtaum­hverfi en stýri­vextir hafa hækkað um 5 pró­sentu­stig að und­an­förnu; farið úr 0,75 pró­sentum í mars á síð­asta ári í 5,75 pró­sent nú. Bankinn, líkt og hinir stóru íslensku bank­arnir tveir, hefur sam­hliða hækkað útlána­vexti sína til við­skipta­vina. Bankinn sjálfur verður hins vegar ekki fyrir sömu áhrifum þess­ara stýri­vaxta­hækk­anna þar sem fjár­mögnun bank­ans er ekki að jafn stórum hluta á breyti­legum vöxtum og útlánin.

Í umfjöllun Stund­ar­innar um hækk­andi vaxta­mun bank­anna frá 8. októ­ber kom fram að um 30 pró­sent af útlána­safni Íslands­banka væru óverð­tryggð hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum. Allar breyt­ingar á vöxtum snerta þennan hóp því bæði beint og hratt, sem hefur greitt sífellt hærri vexti und­an­farin miss­eri, sem hefur þýtt auk­inn hagnað bank­ans.  

Minni arðsemi Arion og Landsbanka

Arion banki skil­aði ekki jafn mik­illi arð­semi og Íslands­banki en Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir sig og sitt teymi „nokkuð sátt við afkomu bank­ans“. Arðsemi eig­in­fjár var 10,5 pró­sent, sam­an­borið við 17 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­að­ur­inn var 4,9 millj­arðar á tíma­bil­inu. 

Vaxta­munur Arion hækk­aði líkt og hjá Íslands­banka á milli tíma­bila og var 3,2 pró­sent. Það er ívið meira en mark­mið bank­ans um vaxta­mun er. Í áður­nefndri umfjöllun Stund­ar­innar um vexti kom fram í svari upp­lýs­inga­full­trúa bank­ans að mark­mið Arion væri að hafa vaxta­mun­inn 3 pró­sent. 

Hagnaður Lands­bank­ans var lægri en Íslands­banka en hærri en Arion; nam 5,8 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu bank­ans frá því í gær um upp­gjör þriðja árs­fjórð­ungs. Vaxta­mun­ur­inn jókst á milli tíma­bila líkt og hjá hinum tveimur og var 2,8 pró­sent. Arðsemi bank­ans, sem er að nær öllu leyti í eigu rík­is­ins, var 8,5 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu