Níddist á fjölskyldum myrtra barna

Hinn alræmdi sjón­varps­maður Alex Jones var á dög­unum dæmdur til að greiða tæpan millj­arð doll­ara í skaða­bætur fyrir ummæli sín um fórn­ar­lömb fjöldamorða. Árum saman hélt hann því fram að fjöldamorðin í Sandy Hook barna­skól­anum hafi verið svið­sett af yfir­völdum. Jones seg­ist ekki taka mark á dómnum en laga­spek­ingar telja að sektin muni hækka og Jones verði hund­eltur vegna þeirra ævina á enda.

Níddist á fjölskyldum myrtra barna
Laug upp á syrgj­andi for­eldra Alex Jones hefur í nokkra ára­tugi rekið eigin fjöl­miðil þar sem hann hefur - fyrst útvarpað en seinna sjón­varpað - sam­blandi af sam­sær­is­kenn­ingum og sölu ýmis konar varn­ings, sem gert hefur hann for­ríkan. Síðustu ár hefur hann fengið sífellt meiri athygli og áhorf, ekki síst í kjöl­far stuðn­ings síns við Donald Trump, sem hefur verið gestur hans. Mynd: afp

Alex Jones hefur lengi verið eitt helsta and­lit þeirra sem aðhyll­ast sam­sær­is­kenn­ingar í Banda­ríkj­unum. Hann hefur verið með þætti í sjón­varpi, útvarpi og net­inu þar sem hann er þekktur fyrir að missa stjórn á skapi sínu og öskra hásum rómi um ýmis lygi­leg alþjóð­leg sam­særi sem hann fjallar um. Meðal þess sem hann hefur fjallað um eru kenn­ingar Bretans David Icke um að leið­togar vinstri­manna, kónga­fólk og annað frægt fólk séu satanistar eða jafn­vel eðlur frá annarri plánetu sem nær­ist á því að drepa nýfædd börn og drekka úr þeim blóðið. Þá sagði hann Barack Obama stjórna veðr­inu með gervi­hnöttum til að fram­kvæma nátt­úru­ham­farir og margt margt fleira, hver kenn­ing fjar­stæðu­kennd­ari en sú síð­asta.

Það sem hefur vakið athygli and­stæð­inga hans, og yfir­valda í seinni tíð, er að Jones virð­ist oft ekki gera grein­ar­mun á trufl­uðum hugs­unum sínum og raun­veru­leik­anum. Ekki síst þegar hann fjallar um venju­legt fólk sem …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HLG
    Hanna Lára Gunnarsdóttir skrifaði
    Skelfilegur maður sem á heima bak við lás og slá; en erum við ekki á leið með vísi að svona “fréttamennsku” hér á landi?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu