Fjármál Ljósleiðarans falin fyrir fjármálastjóra Orkuveitunnar vegna stöðu eiginkonunnar

Aðgengi fjár­mála­stjóra Orku­veit­unnar var tak­markað þegar eig­in­kona hans var kjörin stjórn­ar­for­maður Sýnar. Ljós­leið­ar­innar, dótt­ur­fyr­ir­tæki Orku­veit­unnar, og Sýn starfa á sama mark­aði. Staða sem gengur ekki að mati Bjarna Bjarna­sonar, for­stjóra Orku­veit­unnar.

Fjármál Ljósleiðarans falin fyrir fjármálastjóra Orkuveitunnar vegna stöðu eiginkonunnar
Ósammála Petrea segir að mann­inum sínum hafi verið gefnir afar­kostir en Bjarni segir stöð­una ein­fald­lega ekki ganga upp.

Benedikt K. Magn­ús­son, fjár­mála­stjóri Orku­veit­unnar, hefur ekki lengur aðgengi að fjár­hags­upp­lýs­ingum tengdum Ljós­leið­ar­anum, fyr­ir­tækis í eigu Orku­veit­unnar. Ástæðan er staða eig­in­konu hans, Petreu Ingi­leifar Guð­munds­dóttur, sem stjórn­ar­for­manns Sýnar. Fyrr í kvöld upp­lýsti Petrea að hún ætl­aði ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins á kom­andi hlut­hafa­fundi vegna þess að í „lok lið­innar viku setti for­stjóri OR honum afar­kosti vegna starfs síns, haldi ég áfram í stjórn.“

Í yfir­lýs­ingu Petreu kom fram að Benedikt hefði verið gert ljóst að hann gæti ekki sinnt starf­inu sem skyldi vegna mögu­legrar ásýndar hags­muna­á­rekstra, sem myndi því leiða af sér brott­vikn­ingu hans úr starfi. 

Benedikt var ráð­inn til Orku­veit­unnar í mars á þessu ári. Í yfir­lýs­ingu Petreu kom fram að hún hefði ekki haft neinn aðgang að upp­lýs­ingum um sam­starfs­samn­ing sem gerður hefur verið á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja eða öðrum málum sem varða Ljós­leiðar­ann og Sýn. „Vandað hefur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu