Vaxtahækkanir Seðlabankans halda áfram

Vextir Seðla­bank­ans hækka um 0,25 pró­sentu­stig í dag og verða 5,75 pró­sent. Þetta er enn ein vaxta­hækk­unin sem pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans kynnir í bar­áttu við verð­bólgu. Hún hefur þó hjaðnað að und­an­förnu.

Vaxtahækkanir Seðlabankans halda áfram
Vextir hækk Seðla­banka­stjór­inn Ásgeir Jónsson situr sem for­maður pen­ings­tefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem í dag hækk­aði vexti sína um 0,25 pró­sentu­stig. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands halda áfram að hækka, nú um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir bank­ans verða því 5,75%. Um þetta var til­kynnt í morgun en vextir hafa hækkað úr 0,75 pró­sentum síð­asta sumar, sam­tals um 5 pró­sentu­stig.

Í til­kynn­ingu frá pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans segir að und­ir­liggj­andi verð­bólga hafi auk­ist á milli funda nefnd­ar­innar þó að verð­bólga hafi hjaðnað um 0,6 pró­sent á sama tíma. „Vís­bend­ing­ar eru um að vaxta­hækk­an­ir und­an­far­in miss­eri hafi hægt á vexti al­mennr­ar eft­ir­spurn­ar og um­svif­um á hús­næð­is­mark­aði,“ segir í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar. 

Nefndin segir að vís­bend­ingar af vinnu­mark­aði bendi til að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum hafi náð hámarki en alþjóð­legar efn­hags­horfur hafi versnað. „Og óvissa auk­ist sem kann að leiða til þess að hraðar dragi úr inn­lendri eft­ir­spurn en áður var gert ráð fyrir,“ segir í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu