Gjaldskrárhækkun Strætó dugir ekki og tímabært að endurskoða rekstrarmódelið

Hundruð millj­óna króna gat er í rekstri Strætó og hækkun far­gjalda mun ekki fylla upp í það. Jóhannes Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, segir við­ræður við ríkið um aukna aðkomu standa fyrir dyrum.

Gjaldskrárhækkun Strætó dugir ekki og tímabært að endurskoða rekstrarmódelið
Gengur ekki upp Rekst­ur­inn gengur ekki upp eins og staðan er og hækkun far­gjalda mun ekki breyta því, að því er Jóhannes Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, segir. Mynd: Strætó bs.

Hækkun gjald­skrár Strætó um 12,5 pró­sent dugir ekki til að gera rekst­ur­inn sjálf­bæran. „Langt því frá,“ segir Jóhannes Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, sem segir hækk­un­ina eina af nokkrum aðgerðum sem ráð­ist hefur verið í vegna rekstr­ar­vand­ans. Hún sé þó vissu­lega brött í pró­sentum talið. „En í krónu­tölu nær hún hún kannski einn þriðja upp í hækkun á olíu­verði á árinu, á lítr­anum.“

Jóhannes segir til við­bótar við gjald­skrár­hækkun séu við­ræður í gangi við eig­endur Strætó um að leggja fram meira fé í rekstr­ar­stuðn­ing, hag­ræð­ing­ar­að­gerðir sem hafi átt að vera tíma­bundnar hafi verið fram­lengdar út árið og að sam­tal sé hafi við ríkið um aukna aðkomu þess að rekstr­inum.

Umboðsmaður hefur krafist svara

Nýja gjald­skráin tekur gildi 1. októ­ber næst­kom­andi og mun stakt far­gjald full­orð­inna hækka úr 490 krónum í 550 krónur. Ungmenni, sem þó var lofað frítt í Strætó í sam­starfs­sátt­mála meiri­hlut­ans í borg­inni, munu greiða 275 krónur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu