Allt hefur merkingu, ekkert hefur þýðingu

Á sýn­ingu sinni beinir mynd­list­ar­konan Jóna Hlíf athygl­inni að áferð orð­anna, þeim hluta tungu­máls­ins og mót­unar þess, sem fer fram á óræðu svæði milli skynj­unar og hugs­unar.

Allt hefur merkingu, ekkert hefur þýðingu

Í Berg Contemporary á Klapp­ar­stíg 16 stendur yfir sýn­ing Jónu Hlífar Hall­dórs­dóttur, Líking. Þegar Hill­billy gekk inní gall­er­íið tók á móti henni fjórar fag­ur­bláar myndir sem báru skýr merki lista­kon­unnar, útskornar setn­ingar á bláum fleti. Gulur bjarmi leiddi Hill­billy áfram inní næsta rými þar sem stóð stórum gulum stöfum Allt hefur merk­ingu, ekk­ert hefur þýð­ingu yfir þrjá veggi og svart­hvítar ljós­myndir með vín­bleikum textum hengdar upp á handa­hófs­kenndan máta, eða svo virð­ist Hill­billy. Í næsta rými eru litlar svartar myndir hins­vegar hengdar afar reglu­lega upp með lit­ríkri línu þvert á og texti á öllum veggjum sem faðma þrjá áhuga­verða skúlp­t­úra.

Hill­billy gefur list­fræð­ingnum Oddu Júlíu Vig­fús­dóttur orðið, en hún túlkar sýn­ing­una með næmni og með fylgja myndir eftir Vigfús Birg­is­son.

Fjólublá: Líking

Einu sinni heyrði ég að fjólu­blár væri ekki til. Vegna þess að fjólu­blár hefur enga tíðni, hann verður aðeins til í hugum okkar, í bil­inu á milli þess sem hefur þýð­an­lega tíðni fyrir skyn­færin. Mér varð þetta hug­leikið þegar ég heim­sótti sýn­ing­una Líking sem Jóna Hlíf Hall­dórs­dóttir er með um þessar mundir í BERG Contemporary að Klapp­ar­stíg 16. Segja má að í gegnum þá sýn­ingu leiki fjólu­blár þráður.

Líking er loka­hluti þrí­leiks sýn­inga sem hófst á Lista­safn­inu á Akureyri árið 2020 með sýn­ing­unni Meira en þús­und orð, hélt svo áfram 2021 með sýn­ing­unni Fífu­logar á Kaffi Mokka og líkur nú hér í BERG Contemporary. Allar höfðu sýn­ing­arnar sinn þema lit og er fjólu­blár veið­eig­andi ein­kenni þeirrar síð­ustu, þar sem að bil og eyður leika stórt hlut­verk sem vett­vangur fyrir list­ina til að kanna, nálg­ast og tengja nýja mögu­leika. 

Sýningin er inn­setn­ing ljós­mynda, texta og skúlp­t­úra þar sem að lista­mað­ur­inn veltir fyrir sér mótun og merk­ingu tungu­máls­ins sem og til­gangi list­ar­innar.

Á veggj­unum hanga ljós­myndir sem á hafa verið rituð íslensk orð í fjólu­bláum lit. Mynd­irnar eru kunn­ug­legar, maður gæti haldið að þær séu teknar á Íslandi og mér finnst ég jafn­vel kann­ast við umhverfið. Raunin er hins vegar sú að mynd­irnar koma alls ekki frá Íslandi, þetta eru fundnar myndir úr bókum sem lista­konan hefur stækkað og tekið úr sínu upp­runa­lega sam­hengi. Ef til vill voru það fjólu­bláu orðin sem leiða til mín þennan kunn­ug­leika. Öll eiga þau það sam­eig­in­legt að vera bæði mótuð af og lýsandi fyrir íslenska sögu. Sum eru mér töm en önnur ekki. Flest eru þetta orð yfir það að kom­ast af með naum­indum: skrimta, bláskar, nara, lafa, tóra.

Áhuga­verð teng­ing mynd­ast á milli mynd­anna og þess­ara orða, þau sýna og minna á hvernig íslenskan er mótuð af nátt­úr­unni og sam­vist okkar við hana í gegnum tíð­ina en einnig hvernig við höfum horfið frá henni og tungu­mál­inu á sama tíma. Orðin finnst mér til­heyra bili í hug­ar­bú­inu sem er mitt á milli þess sem ég þekki og mig rámar í. Ég þekki til­finn­ing­una sem fylgir.  

Hvað er óþýðanlegt?

Orðin „ALLT HEFUR MERKINGU, EKKERT HEFUR ÞÝÐINGU“ hafa verið skrifuð stórum gulum stöfum á áber­andi stað í sýn­ing­unni og veita manni ákveð­inn lykil að henni.

Hvað er óþýð­an­legt? er spurn­ing sem skýtur sam­stundis upp koll­inum og fær mig til að taka annan hring, líta aftur á verkin.

Ég tek eftir því að orðin sem lista­mað­ur­inn notar eru hlaðin til­finn­ingum og sögu sem ekki væri svo auðið að þýða. En mynd­irnar, hvernig þýðir maður mynd?

Við getum fjallað um myndir og þær til­finn­ingar og upp­lif­anir sem þær kunna að kalla á, þó eiga þær sér enga eig­in­lega hlið­stæðu eða þýð­ingu. Bæði myndir og mál skapa nýjar víddir innan ver­ald­ar­innar, fullar af táknum sem vísa út fyrir þær sjálfar. Jóna Hlíf virkjar bilið á milli þess­ara vídda, hún skeytir þeim saman til þess að opna fyrir nýja veru­leika og mögu­leika sem líkt og fjólu­blár, brúa bilið á milli tveggja ólíkra upp­lif­ana. Með þessu beinir hún athygl­inni að áferð orð­anna, þeim hluta tungu­máls­ins og mót­unar þess, sem fer fram á óræðu svæði milli skynj­unar og hugs­unar. 

Merkingin og fegurðin

Í öðru rými innan af þessu mæt­ast einnig þessir tveir eig­in­leikar tungu­máls­ins, merk­ingin og feg­urðin. Í miðj­unni hefur þremur skúlp­t­úrum verið stillt upp og á öllum veggj­unum í kring, frá öðrum dyrakarm­inum í hinn, er full­komin lína. Setning um setn­inga­gerð og eig­in­leika mál­kerf­is­ins sem einnig er táknað með hinni full­komnu línu á fer­hyrndum bútum regn­boga papp­írs. Skúlp­t­úr­arnir í miðj­unni eru stöplar sem á eru krist­all, mold, mel­gresi og steinn. Ef til vill mætti líta á þessi verk sem enn eitt bilið í sýn­ing­unni, þar sem að hugs­un­inni er gefin hvíld og skynj­unin fær að njóta. Jafnvel væri hægt að líta á þau sem tákn­ræn fyrir þá óræðu feg­urð sem á sér stað í bili og er kjarni tungu­máls­ins. 

Bil leika stórt hlut­verk í sýn­ing­unni sem vett­vangur sköp­unar, listar og nýrra mögu­leika. Sýningin er full af alls­konar fróð­leik, þekk­ingu, feg­urð og kímni. Hún er eins og setn­ing, gestum er boðið að koma sér fyrir í bilum á mis­mun­andi stöðum innan hennar til þess að upp­götva inni­hald hennar og upp­bygg­ingu innan frá. Fjólu­blái lit­ur­inn býr til tíma­bundnar brýr á milli ólíkra tákn­heima og leyfir manni að staldra við, hugsa, njóta og upp­götva.


Sýning Jónu Hlífar, Líking, í Berg Contemporary stendur til 1. októ­ber.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár