945. spurningaþraut: Sólveig Matthildur, Laufey Soffía og Margrét Rósa eru hljómsveit

945. spurningaþraut: Sólveig Matthildur, Laufey Soffía og Margrét Rósa eru hljómsveit

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá Halldóru Geir­harðs­dóttur á leik­sviði. Hvað er hún að leika þarna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvernig dýr er hávella?

2.  Fyrir um ára­tug fund­ust ævafornar leifar af manni í helli í Rúss­landi og reynd­ist þar vera um að ræða nýja og áður óþekkta mann­teg­und, sem uppi var um svipað leyti og Neand­er­dals­menn. Hvaða nafn hefur teg­undin hlotið?

3.  Clarence Leonidas Fender var banda­rískur hug­vits­maður sem stofn­aði fyr­ir­tæki til að fram­leiða vörur sem hann þró­aði. Vörurnar voru ýmsar, en óhætt er að segja að lang­fræg­asta og vin­sælasta vara Fenders hafi verið ... hvað? 

4.  Í hvaða borg er Prado-lista­safnið?

5.  En í hvaða borg var fjörugt lista­líf fyrir 80-100 árum kennt við vinstri bakk­ann á fljóti sem rennur um borg­ina?

6.  Banda­ríski rit­höf­und­ur­inn Hemingway skrif­aði fræga end­ur­minn­inga­bók um dvöl sína á vinstri bakk­anum í þess­ari bók. Hvað nefn­ist bókin í íslenskri þýð­ingu?

7.  Það var raunar eng­inn smá­kall sem þýddi þá bók á íslensku, heldur ... hver?

8.  Hvaða heim­spek­ingur sendi frá sér árið 1818 bók­ina Die Welt als Wille und Vor­stell­ung? Eða Veröldin sem vilji og fram­setn­ing — laus­lega þýtt!

9.  Sólveig Matt­hildur hljóm­borðs­leik­ari, Laufey Soffía söngv­ari og Margrét Rósa bassa­leik­ari eru hljóm­sveit. Hvað heitir hljóm­sveitin?

10.  Möngke, Hulagu, Güyü, Kublai, Batu, Baidar og Ariq voru allir frægir menn og aðsóps­miklir fyrir 800 árum eða svo. En hver var enn fræg­ari afi þeirra allra?

***

Auka­spurn­ingin seinni:

Hvaða fjöll má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fugl.

2.  Den­isovar.

3.  Raf­magns­gítar. „Rafmagn“ verður að vera með.

4.  Madrid.

5.  París.

6.  Veisla í farángrinum.

7.  Halldór Laxness.

8.  Schopenhauer.

9.  Kælan mikla.

10.  Genghis Khan.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Halldóra er að leika Bubba Morthens.

Fjall­garð­ur­inn er Himalaja.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár