943. spurningaþraut: Frank Fredericksen og tækið hans

Fyrri auka­spurning: Hvað nefnist verkfærið á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvað nefndist varð- og sendi­guðinn í norrænni goðafræði?

2.  Hvaða samtök kenna sig við þann guð?

3.  Hvaða leikhúsi stýrir Brynhildur Guðjóns­dóttir um þessar mundir?

4.  Í hvaða heimsálfu er ríkið São Tomé e Príncipe?

5.  En ríkið Máritanía, í hvaða heimsálfu er það?

6.  Í ágúst síðastliðnum vakti það bæði óhug og athygli þegar líkams­leifar tveggja barna fundust í ferða­töskum sem geymslu­fyrirtæki seldi hæstbjóðanda, án þess að hvorki fyrir­tækið né kaup­andinn höfðu hugmynd um hvað í töskunum væri. Í hvaða landi gerðist þetta?

7.  Fnjóská og Hörgá falla báðar í sama fjörð á Íslandi. Hvað heitir fjörðurinn?

8.  Hann var sonur Laufeyjar og Fárbauta jötuns. Hvað hét hann sjálfur?

9.  Frank Fredericksen hét maður, svonefndur Vestur-Íslend­ingur, sem kom hingað til lands árið 1919 og hafði meðferðis tæki eitt nýstárlegt sem hann brúkaði síðan fyrstur allra manna á Íslandi það sama ár, aðallega í Vatns­mýrinni. Þetta vakti gríðar­lega athygli en tækinu var nú samt pakkað saman og flutt úr landi ári síðar. Hvaða tæki var þetta?

10.  Baldur von Schirach var leiðtogi fjölmennra æskulýðs­samtaka á árunum 1931-1940. Hvað nefndust þau?

***

Seinni auka­spurning: Hér má sjá forseta tiltekins lands (til vinstri) skipa tvíbura­bróður sinn (til hægri) forsætis­ráðherra. Hvað heita bræðurnir? Hér dugar eftirnafn þeirra.

Og fyrir lárviðar­stig: Hvað heitir stjórn­mála­flokkurinn sem bræðurnir stofnuðu 2001?

***

Aðal­spurninga­svör:

1.  Heim­dallur.

2.  Samtök ungra Sjálfstæðis­manna í Reykjavík.

3.  Borgar­leikhúsinu.

4.  Í Afríku.

5.  Líka í Afríku.

6.  Nýja Sjálandi.

7.  Eyja­fjörður.

8.  Loki.

9.  Flugvél.

10.  Hitler Jugend, Hitlersæskan.

***

Svör við auka­spurningum:

Verkfærið heitir slípirokkur.

Bræðurnir heita Kaczyński. Forsetinn Lech dó í flugslysi 2010 en Jarosław er enn formaður flokksins sem þeir stofnuðu, Lög og réttlæti nefnist hann á íslensku.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár