Hækka skatt á áfengi í fríhöfninni

„Toll­ur­inn“ í frí­höfn­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli hækkar veru­lega í verði á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar og rík­is­stjórn­ar­innar.

Hækka skatt á áfengi í fríhöfninni

Gömul hefð Íslend­inga við heim­komu úr ferða­lögum erlendis gæti tekið stakka­skiptum í kjöl­far fjár­laga­frum­varps árs­ins 2023 sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti í morgun.

Fram að þessu hafa margir Íslend­ingar keypt áfengi í „toll­frjálsri verslun“ í frí­höfn í tak­mörk­uðu magni. Ein helsta breyt­ingin í skatt­heimtu sam­kvæmt nýju fjár­laga­frum­varp­inu er lækkun á skatta­af­slætti á áfengi og tóbaki í toll­frjálsum versl­unum. Bjarni Bene­dikts­son áformar að ná inn 700 millj­ónum króna í auka­skatt­tekjur með breyt­ing­unni. Þetta þýðir að áfeng­is­verð mun að lág­marki hækka um 15% og verð á tóbaki um 10% í frí­höfn­inni, með fyr­ir­vara um að end­an­leg álagn­ing er óljós.

Áfengi í frí­höfn­inni ber nú 10% áfeng­is­gjald og tóbak 40%. „Til stendur að draga úr afslætti í toll­frjálsum versl­unum þannig áfeng­is­gjald fari úr 10% í 25% og tóbaks­gjald úr 40% í 50% af því sem almennt gildir,“ segir í fjár­laga­frum­varp­inu. Ferða­menn hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlagafrumvarp 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár