923. spurningaþraut: Nýr einstaklingur vex af gömlum armi

923. spurningaþraut: Nýr einstaklingur vex af gömlum armi

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá sjón­varps­stjörnu eina mikla frá Banda­ríkj­unum. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Ný bók Arnaldar Ind­riða­sonar er nú að koma út. Áður en Arnaldur gerð­ist rit­höf­undur í fullu starfi var hann blaða­maður og var einkum kunnur sem gagn­rýn­andi ... arki­tekt­úrs eða bíla­í­þrótta eða kvik­mynda eða ljóða eða mál­ara­listar eða rokktón­listar?

2.  Hvaða íslenskur flug­maður var kunnur fyrir að eiga flug­vél með ein­kenn­is­staf­ina TF-FRÚ?

3.  E=mc2. Hver mun hafa fattað upp á þessu fyrst eða fyrstur?

4.  Hvað þýðir E-ið í þess­ari jöfnu?

5.  Hver var vin­sælasta sjón­varps­s­er­ían sem tekin var upp hér á landi — að svolitlum parti til — á síð­asta ára­tug?

6.  Árið 1996 varð stutt en all­mikið eld­gos á ákveðnum stað og hlóðst upp á skömmum tíma svo­lítið fjall sem fékk nafnið Gjálp. Hvar er þetta fjall?

7.  Hvað heitir einka­dóttir Elísa­betar heit­innar Breta­drottn­ingar?

8.  Eitt er það dýr af ætt­inni Aster­oidea, sem getur í sumum til­fellum fjölgað sér þannig að hluti af einum armi dettur af og þroskast í annan ein­stak­ling. Dýrið fjölgar sér þó líka með öðrum og öllu venju­legri hætti. En hvaða dýr er það sem hefur (sumar teg­undir!) þessa sér­kenni­legu arma? 

9.  Eitt af stór­mótum karla­fót­bolt­ans var haldið á sínum tíma í Úkraínu — og reyndar í Póllandi líka. Hvaða mót var það? Ártal verður að vera rétt, nátt­úr­lega.

10.  Annað stór­mót hefur verið haldið í Rúss­landi. Og það var ... hvaða mót?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá skjá­skot úr íslenskri sjón­varps­s­eríu frá því fyrir þrem árum. Hvað heitir ser­ían?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kvik­mynda.

2.  Ómar Ragn­ars­son.

3.  Einstein.

4.  Orka.

5.  Game of Thrones, Krúnu­leikar.

6.  Undir Vatna­jökli.

7.  Anna.

8.  Kross­fiskar.

9.  Evr­ópu­meist­ara­mót karla 2012.

10.  Heims­meist­ara­mótið 2018.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konann á efri mynd­inni heitir Ellen DeGeneres.

Serían sem skjá­skotið var úr er Pabba­helgar.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár