922. spurningaþraut: „Og leiðin liggur ekki heim“ — fyrr en þá eftir tíu ár

922. spurningaþraut: „Og leiðin liggur ekki heim“ — fyrr en þá eftir tíu ár

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þessi ábúð­ar­mikli leik­hús­maður?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Botsvana?

2.  Hver var í tíu ár á leið heim til sín úr Tróju­stríð­inu?

3.  Hvaða hvalur heitir á mörgum málum orca?

4.  Hver er for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins?

5.  Leik­ar­inn góð­kunni Gísli Rúnar Jónsson lék fremur lítið en mik­il­vægt hlut­verk í gam­an­mynd­inni vin­sælu Stella í orlofi. Hvern lék hann?

6.  Þing­maður Sam­fylk­ingar er nú fyrsti vara­for­seti Alþingis. Hvað heitir hún?

7.  Í gríð­ar­lega vin­sælli banda­rískri sjón­varps­s­eríu fær efna­fræði­kenn­ari einn þær fréttir að hann sé dauð­vona af krabba­meini. Hann grípur þá til óvenju­legs ráðs til að tryggja fjár­hags­legt öryggi fjöl­skyldu sinnar. Hvað fer hann að gera?

8.  En hvað heitir ser­ían?

9.  Hvað er mar­svín?

10.  Hverrar þjóðar var Ernesto Guevara, kall­aður Che?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað köll­uðu þær sig, þessar?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afríku.

2.  Ódysseifur.

3.  Háhyrn­ingur.

4.  Sigurður Ingi.

5.  Flug­stjór­ann.

6.  Oddný Harð­ar­dóttir.

7.  Sjóða saman og selja eit­ur­lyf.

8.  Breaking Bad.

9.  Hvala­teg­und. Einnig gef ég rétt fyrir naggrís.

10.  Argent­ínskur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er leik­skáldið Ibsen frá Noregi.

Á neðri mynd­inni er Eurovision söngdúóið Bobbysocks — líka frá Noregi.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár