Saga Nínu: Í leit að samþykki en endaði í vændi

Konur í vændi eru útskúf­aðar úr sam­fé­lag­inu, rétt­indi þeirra eru brotin og vernd er hvergi að finna, er nið­ur­staða nýrrar íslenskrar rann­sóknar. „Maður er ekki mann­eskja.“

Saga Nínu: Í leit að samþykki en endaði í vændi

Nína varð fyrir hópnauðgun tólf ára gömul. Afleið­ing­arnar birt­ust meðal ann­ars í því að hún reyndi að sækja sér við­ur­kenn­ingu með því að klæða sig lítið og ástunda kyn­ferð­is­lega hegðun. Hún var stimpluð drusla og varð fyrir kyn­ferð­is­legu ein­elti af hálfu vina, sem hafði í för með sér enn meira kyn­ferð­is­of­beldi. 

Nína er ein fjórtán íslenskra kvenna sem deilir reynslu sinni af vændi í nýrri íslenskri rann­sókn. Sumar þeirra þurftu að þola druslu­skömmun og kyn­ferð­is­legt ein­elti í æsku. Nína segir meðal ann­ars frá aðstæðum þar sem kær­asti vin­konu hennar fékk sím­tal frá manni sem vildi athuga hvort hann vissi um „ein­hverja stelpu sem hann geti riðið“. Hún var fjórtán ára og mað­ur­inn var kom­inn yfir þrí­tugt. En vinir hennar þrýstu á hana að fara. „Þau vissu að ég myndi fara og ég sagði alltaf nei. Þau bara ýttu á mig þangað til ég sagði já.“ Seinna komst hún að því …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár