Enn fleiri ferðamenn en von var á fara um Leifsstöð

Búist er við að 6,2 milljónir ferða­manna fljúgi um Kefla­víkur­flugvöll í ár. Mun fleiri hafa farið um flug­völlinn það sem af er ári en áætlanir Isavia gerðu ráð fyrir í upphafi árs. Icelandair hefur eitt og sér flutt 1,4 milljónir farþega til og frá landinu í sumar.

Á ferð og flugi
Á ferð og flugi Icelandair hefur sann­ar­lega verið á flugi í sumar sam­an­borið við síð­asta ár en félagið hefur flutt sam­tals 1,4 millj­ónir ferða­manna til og frá land­inu í júní, júlí og ágúst. Það er tæp­lega helm­ingur allra milli­landa­ferða­langa þessa mán­uði. Mynd: Icelandair

Isavia gerir ráð fyrir að 6,2 milljónir ferða­manna fljúgi um Kefla­víkur­flugvöll í ár. Það er um hálfri milljón fleiri farþegar en gert var ráð fyrir í síðustu spá, sem birt var í maí síðastliðnum. Í byrjun árs gerði spáin ekki fyrir nema 4,6 milljónum farþega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia, þar sem haft er eftir forstöðu­manni flug­félaga og leiðar­þróunar hjá fyrir­tækinu, Grétari Má Garðars­syni, að sumarið hafi farið fram úr væntingum. „Það er greinilegt að Ísland heldur áfram að vera vinsæll áfanga­staður fyrir ferða­langa,“ segir hann. 

„Það er greini­legt að Ísland heldur áfram að vera vin­sæll áfanga­staður fyrir ferða­langa“

Sumar­mánuðina júní, júlí og ágúst fóru 2.392.833 farþegar um flug­stöðina, samkvæmt Isavia, en það er samtala þeirra sem komu og þeirra sem fóru þessa þrjá mánuði. Þetta er um eitt hundrað þúsund færri ferðamenn en fóru um flug­völlinn …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár