Fordæma dreifingu kynlífsmyndbands á TikTok af fólki með þroskahömlun

Íslenskir TikTok not­endur hafa brugð­ist hart við og for­dæmt dreif­ingu mynd­bands­ins sem virð­ist vera tekið upp með sam­þykki fólks­ins sem þar sést. „Það kemur þér bara and­skot­ans ekk­ert við hvað það kýs að gera,“ segir einn TikTok not­andi sem gagn­rýnir fólk sem dreift hefur umræddu mynd­bandi. Lands­sam­tökin Þroska­hjálp segja um mikið áhyggju­efni að ræða og að þörf sé á auk­inni fræðslu.

Fordæma dreifingu kynlífsmyndbands á TikTok af fólki með þroskahömlun
Hafa veru­legar áhyggjur „Við höfum auð­vitað áhyggjur af okkar skjól­stæð­ingum,“ segir Árni Múli Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Þroska­hjálpar. Unnur Helga Ótt­ars­dóttir for­maður sam­tak­anna segir mik­il­vægt að auka fræðslu um hættur í staf­rænu umhverfi.

Íslenskir not­endur sam­fé­lags­mið­ils­ins TikTok hafa und­an­farna daga gagn­rýnt harð­lega dreif­ingu kyn­lífs­mynd­bands á miðl­inum. Að því fram kemur er um að ræða mynd­band af fólki með þroska­hömlun. Lands­sam­tökin Þroska­hjálp hafa tölu­verðar áhyggjur af sínum skjól­stæð­ingum og segja þörf á veru­lega auk­inni fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu um hættur í staf­rænum heimi. Vonir standa til að stjórn­völd stígi inn og styðji við sam­tökin í þeim efnum.

Fjöldi íslenskra not­enda sam­fé­lags­mið­ils­ins TikTok hafa gagn­rýnt dreif­ingu ann­arra not­enda á mynd­band­inu sem um ræðir. Meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt dreif­ingu mynd­bands­ins er Ing­veldur Þóra Sam­ú­els­dóttir, en hún birti pistil þess efnis á sam­fé­lags­miðl­inum sjálfum. Ing­veldur bendir í pistli sínum á að engu máli skipti hvaða augum fólk líti annað fólk, það eigi allir sömu virð­ingu skilið. Þá sé það að rakka fólk niður og gera grín að því fyrir hvað það geri í sínu einka­lífi óásætt­an­leg hegðun.

„Það að tveir full­orðnir ein­stak­lingar hafi tekið þá ákvörðun að stunda kyn­líf og taka það upp, með sam­þykki hvort frá öðru, [...] það kemur þér bara and­skot­ans ekk­ert við hvað það kýs að gera,“ segir Ing­veldur meðal ann­ars og er, sem fyrr segir, frá­leitt sú eina sem hefur gagn­rýnt dreif­ingu mynd­bands­ins.

Getur varðað fangelsi allt að fjórum árum.

Dreifing mynd­bands­ins sem um ræðir er ólög­leg. Samkvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum skal hver sá sem dreifir eða birtir myndefni af nekt eða kyn­ferð­is­legri hátt­semi ann­arra án hans sam­þykkis sæta sektum eða fang­elsi allt að fjórum árum. Til­greint er að sé slíkt brot framið af gáleysi varði það sektum eða fang­elsi allt að einu ári.

„Við höfum auð­vitað áhyggjur af okkar skjól­stæð­ingum“
Árni Múli Jónasson
fram­kvæmda­stjóri Þroska­hjálpar

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp telja dreif­ingu á mynd­band­inu, sem og önnur við­líka mál, mikið áhyggju­efni. „Við höfum auð­vitað áhyggjur af okkar skjól­stæð­ingum, varð­andi þær hættur sem eru til staðar í þessum heimi. Við höfum áhyggjur af þessu sem þú nefnir hér, mynd­birt­ingum eins og þessum, en líka er til staðar hætta á að fólk sé afvega­leitt en vegna fötl­unar og aðstæðna sinna er þessi hópur ber­skjald­aður. Við erum þá að tala um hætt­una á því að ein­hverjir óprút­tnir aðilar nái sam­bandi við fólk með haml­anir og nýti sér það með ein­hverjum hætti, hvort sem er með kyn­ferð­is­legum hætti eða öðrum,“ segir Árni Múli Jónasson, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna.

Unnur Helga Ótt­ars­dóttir for­maður Þroska­hjálpar segir að vit­an­lega geti allt fólk tekið ákvarð­anir eða gert eitt­hvað sem það hefði ekki átt gera, eða sjái eftir. „En það er áhyggju­efni að fólk með fatl­anir eða rask­anir getur í ein­hverjum til­vikum verið lík­legra en annað til að láta undan þrýst­ingi.“

Bæði Unnur og Árni Múli benda á að fólk með þroska­hömlun hafi sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt, sem ekki megi af þeim taka. Það geti hins vegar þurft meiri stuðn­ing en aðrir til að fara með hann. Því sé gíf­ur­lega mik­il­vægt að auka fræðslu fyrir þann hóp. Lands­sam­tökin Þroska­hjálp hafa haft frum­kvæði að því að vekja athygli á þörf­inni á þjálfun og fræðslu fyrir sína umbjóð­endur varð­andi nýt­ingu upp­lýs­inga­tækni, sem og hver ábyrg nýt­ing þeirrar tækni er. Árni Múli segir að rætt hafi verið við stjórn­völd um styrki til að auka veru­lega fræðslu vegna hætt­unnar sem er sam­fara notkun nets­ins. „Fólk þarf að skilja að setji það eitt­hvað inn á netið er það komið þangað til að vera og getur farið í dreif­ingu um allan heim. Fólk þarf að skilja afleið­ing­arnar,“ segir Unnur og bendir einnig á mik­il­vægi þess að aukin verði fræðsla um heil­brigð sam­skipti á net­inu.

Fatlaðir verða fyrir hatursorðræðu

Þrátt fyrir að Þroska­hjálp séu með­vituð um þessar hættur hafa sam­tökin ekki haft tök á að hleypa af stokk­unum stór­felldri vit­und­ar­vakn­ingu um mála­flokk­inn. Árni Múli segir að unnið sé að því og sam­tökin séu bjart­sýn á að stuðn­ingur til þess fáist. Útbúa þurfi fræðu­slu­efni sem nái til sem flestra, sem sé sniðið að mis­mun­andi þörfum fólks með þroska­haml­anir, sem og að sam­fé­lag­inu öllu. Náist fjár­magn til þess sjá sam­tökin fyrir sér að slíkt fræðslu­efni verði nýtt til kennslu og fræðslu í skólum en einnig að það yrði birt á sam­fé­lags­miðl­unum sjálfum. „Þetta er flókið við­fangs­efni. Það eru mikil tæki­færi í staf­rænni þróun fyrir okkar skjól­stæð­inga en það eru hættur líka, og kannski meiri en fyrir aðra hópa,“ segir Árni Múli.

„Ég held það gleym­ist oft að fatlað fólk verður fyrir hat­urs­orð­ræðu“
Unnur Helga Ótt­ars­dóttir
for­maður Þroska­hjálpar

Mörg dæmi má sjá á TikTok um að not­endur geri gys að fólki sem bindur ekki bagga sína sömu hnútum og sam­ferða­menn sínir, meðal ann­ars fólki sem er með þroska­haml­anir. Þau Árni Múli og Unnur segja að Þroska­hjálp sé með­vituð um slíkt. „Það má setja þetta í sam­hengi við umræðu um hat­urs­orð­ræðu, sem vissu­lega er stórt orð. En ef fólk er vilj­andi að gera gys að ein­stak­lingi vegna fötl­unar hans, þá er það hat­urs­orð­ræða. Það er verið að lít­il­lækka ein­stak­ling­inn vegna þess. Þetta er mikið áhyggju­efni,“ segir Árni Múli og bætir við að Þroska­hjálp séu í sam­starfi við starfs­hóp for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem vinni að því að greina hat­urs­orð­ræðu.

„Ég held það gleym­ist oft að fatlað fólk verður fyrir hat­urs­orð­ræðu, og ekki síst tals­menn fatl­aðs fólks sem stíga fram og krefj­ast rétt­inda. Í því er fólgin bæði atlaga að per­sónum, að fólki með fötlun og atlaga að tján­ing­ar­frels­inu. Það er stóral­var­legt því það getur dregið úr fólki og minnkar lík­urnar á því að það treysti sér til að taka þátt í umræðu þar um. Þar er ekki um stóran hóp að ræða og þetta er mikið áhyggju­efni,“ segir Unnur.  

  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár