„Ofsafengin“ líkamsárás: Foreldrar lýsa vonbrigðum með dóminn

„Við for­eldr­arnir eru mjög vonsviknir,“ segir faðir manns sem varð fyrir hnífstungu­árás fyrir framan skemmti­stað­inn 203 Club fyrr á árinu. Hér­aðs­dómur taldi mann­dráp­stil­raun ekki sann­aða þrátt fyrir ítrek­aðar stungur og lífs­hættu­lega áverka.

„Ofsafengin“ líkamsárás: Foreldrar lýsa vonbrigðum með dóminn

„Við for­eldr­arnir erum mjög vonsviknir,“ segir faðir manns sem varð fyrir hnífstungu­árás fyrir framan skemmti­stað­inn 203 Club við Aust­ur­stræti þann 5. mars 2022. Til átaka hafði komið inni á skemmti­staðnum og lýsti brota­þoli, 21 árs gam­all maður, því hvernig hann hefði gengið þar á milli. Hann hefði síðan farið út af skemmti­staðnum og staðið þar, þegar maður kom aftan að honum með orð­unum: „Was this you?“ og látið höggin dynja á honum. 

Líkamsárás en ekki tilraun til manndráps 

Tveir menn, Daniel Zambrana Aquilar og Raúl Ríos Rueda, voru ákærðir fyrir að ráð­ast að mann­inum með hnefa­höggum og óþekktu stungu­vopni, lík­lega skrúfjárni. Í dómnum er tekið fram að ekk­ert hafi komið fram sem gæti skýrt ástæður árás­ar­innar, sem hafi verið til­efn­is­laus. Á mynd­bands­upp­tökum mátti sjá að brota­þoli kom engum vörnum við og bar hendur fyrir höfuð sér. 

„Nú spyr ég, hvað hélt hann að myndi ger­ast?“

Sak­sókn­ari krafð­ist refs­ingar fyrir til­raun til mann­dráps, en fyrir dómi neit­aði Daniel stað­fast­lega að hafa ætlað að ráða brota­þola bana. Sagðist hann ekki hafa getað ímyndað sér að hann gæti valdið jafn miklum skaða og raunin varð þegar hann greip áhald upp af göt­unni og beitti því ítrekað á brota­þola. Höggin, sem voru að minnsta kosti sex tals­ins, náðu í gegnum jakka brota­þola. Áverk­arnir voru lífs­hættu­legir, en lungu féllu saman, auk þess sem brota­þoli var allur í sárum. Mat dóms­ins var að ekki væri hægt að slá því föstu að Daniel væri ljóst, þegar hann stakk brota­þola ítrekað, að bani kynni að hljót­ast af atlög­unni. Var hann því sýkn­aður af til­raun til mann­dráps, en sak­felldur fyrir stór­fellda lík­ams­árás.  

Tilefnislaus og ofsafengin árás

Dómurinn féll í gær, 25. ágúst. „Lík­ams­árásin var til­efn­is­laus og ofsa­fengin og afleið­ing­arnar alvar­legar,“ segir í dóms­orði. Var Daniel dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir árás­ina, auk þess sem honum var gert að greiða 1,5 millj­ónir í miska­bætur. 

Hinn mað­ur­inn sem tók þátt í árásinni fyrir utan 203 Club, Raúl Ríos, fékk þriggja mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm vegna aðildar að atvikum og var gert að greiða 400 þús­und í miska­bætur.

Um leið var Daniel dæmdur fyrir að brjóta tennur í 24 ára gömlum manni fyrir utan Prikið, með því að veit­ast að honum með ofbeldi og gefa honum oln­boga­skot í and­litið. Brota­þola í því máli voru dæmdar 500 þús­und krónur í miska­bætur.   

Stunginn sex eða sjö sinnum 

For­eldrum brota­þola er fyr­ir­munað að skilja nið­ur­stöðu dóms­ins. Faðir hans segir að sonur sinn hafi ekki komið neinum vörnum við og engin ógn hafi stafað af honum. „Annar mann­anna stakk son minn sjö sinnum með vopni, kannski skrúfjárni, sem olli því að bæði lungu hans féllu saman og hann var í hættu á að fá hjarta­á­fall. Dómari féllst á rök lög­fræð­ings Daniels að um stór­fellda lík­ams­árás væri að ræða frekar en mann­dráp­stil­raun, því Daniel hafi ekki gert sér grein fyrir því að árásin með vopn­inu gæti orðið syni mínum að bana. Nú spyr ég, hvað hélt hann að myndi ger­ast?“

Bendir hann á hversu mikið afl þurfti til að valda þessum skaða, því stung­urnar fóru í gegnum þykkan fóðr­aðan galla­jakka, hettu­peysu og bol. „Vopnið fannst aldrei en mynd­band náð­ist af Daniel skila vopnum frá sér og ná í það aftur.“ 

Hann hefur áhyggjur af for­dæm­is­gild­inu. „Hér finnst áhyggju­efni hversu mikið slíkar árásir hafa auk­ist. Þess vegna finnst mér þessi dómur mikil von­brigði. Er verið að normalísera vopn­aðar árásir, með þess­ari nið­ur­stöðu?“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár