„Þetta fólk er fórnarlömb verðbólgunnar“

Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri segir vaxta­hækkanir koma til af góðu. „Þetta er að ganga miklu betur hjá okkur,“ segir hann. „Vísbendingar um að hagkerfið sé að ofhitna”, segir aðal­hagfræðingur bankans. „Þetta fólk er fórnar­lömb verð­bólgunnar,“ segir Ásgeir.

Ásgeir Jónsson
Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóri segir þörf á nei­kvæðri nálgun vegna hit­ans í hag­kerf­inu. Mynd: Davíð Þór

Nú þegar Seðla­bankinn hefur hækkað vexti um 0,75% segir seðla­banka­stjórinn Ásgeir Jónsson að hækkunin komi til af góðum ástæðum í þetta sinn. Á fundi peninga­stefnu­nefndar í morgun endurtók Ásgeir skila­boðin fjórum sinnum, „okkur er að ganga mjög vel“. Á fundinum birtist skýrt að tvær hliðar eru á peningnum þegar litið er til ástands hagkerfis Íslands.

„Þessi aukna verðbólga sem við erum að spá stafar af því að hagvaxtar­horfurnar eru alltaf að batna. Þetta er að ganga miklu betur hjá okkur. Og það er í sjálfu sér alveg ömurlegt fag að vera í hagfræði, vegna þess að jákvæðar fréttir verða alltaf neikvæðar hjá okkur. Síðustu fjóra fjórðunga, kerfið er búið að vaxa um tíu present á hverjum fjórðungi. Og þá þurfum við að hækka vexti og vera neikvæð,“ sagði hann, á kynningar­fundi peninga­stefnu­nefndar í morgun.

Hagkerfið ofhitnar

Um leið og verðlag „hækkar verulega“ og vaxta­greiðslur fólks aukast, samhliða því að laun hafa hækkað um 8% síðasta árið, lýsir peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans ákveðnu lúxus­vandamáli.

Þórarinn G. Pétursson, aðal­hagfræðingur seðla­bankans, bendir á að met hafa verið slegin. „Það eru vísbendingar um að hagkerfið sé að ofhitna,“ sagði Þórarinn í morgun.

Störfum fjölgar um 8% á milli ára, fyrirtæki „í vandræðum með að fá fólk í vinnu“ og „vinnu­vikan er tekin að lengjast aftur í fyrsta sinn frá því 2019“, benti Þórarinn á.  Á sama tíma eykst svartsýni og almenningur gerir ráð fyrir meiri verðbólgu. 

„Við erum með metfjölda af túristum sem eru að reyna ansi mikið á innlenda resorsa,“ sagði Þórarinn.

Ein vísbendingin um hitann í hagkerfinu er það sem hagfræðingarnir kalla „innflutning vinnuafls“.

„Hrein aukning á erlendum ríkis­borgurum var yfir 3.500 sem er það mesta sem hefur mælst frá upphafi mælinga,“ segir Þórarinn.

Um er að ræða að stórum hluta fólk sem kemur til starfa í ferða­þjónustu. Spurður út í það hvort lágtekju­fólk hefði ekki fengið verulega raun­launahækkun að undan­förnu - að laun hafi hækkað langt umfram verð­bólguna - sagði Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri að lágtekju­fólk færi verst út úr verð­bólgunni og að horfa þyrfti á samhengi fram­haldsins. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár