Skattakóngur Garðabæjar ætlar á sjóinn

„Ég greiði það sem keis­aranum ber,“ segir Þorvaldur Árnason, sem greiddi alls um 330 milljónir króna í skatt á síðasta ári. Tekjurnar koma til vegna sölu á fyrir­tækinu sem hann hefur byggt upp á 45 árum. Nú ætlar hann á sjóinn.

Þorvaldur Árnason er skattakóngur Garðabæjar
Þor­valdur Árnason er skatta­kóngur Garða­bæjar Mynd: MBL / Þorkell Þorkelsson

Þorvaldur Árnason, fyrr­verandi eigandi Lyfjavals, er í áttunda sæti yfir skatta­kónga Íslands og er einnig skatta­kóngur Garða­bæjar. Greiddi hann alls um 330 milljónir króna. Þorri skattsins sem hann greiddi stafar af sölu fyrir­tækis sem hann var 45 ár að byggja upp.  

328,5
millj­ónir króna
greiddi Þor­valdur í skatta á síð­asta ári

„Á síðasta ári seldi ég fyrir­tækið sem ég er búinn að starfa við í 45 ár. Þetta eru peningar sem ég er búinn að eignast á þessum árum,“ segir Þorvaldur í samtali við Stundina. Aðspurður hvort hann sé ánægður með að greiða þessa skatta segir hann: „Ég greiði það sem keis­aranum ber.“

„Það er betra að hætta þegar fólk sér eftir manni“

Þorvaldur segir að hann hafi alltaf ætlað að hætta að vinna þegar hann yrði sjötugur. Hann stóð við þau orð og seldi fyrir­tækið. Það …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár