Við byggjum upp hamingju okkar með réttum ákvörðunum

Ágúst Borgþór Sverr­is­son, blaða­maður og rit­höf­undur, segir að þakk­læti sé einn af ham­ingju­lyklunum sínum og að dag­leg vinnu­semi sem færir afrakstur sé ein af for­sendum þess að mann­eskja upp­lifi ham­ingju. Hann seg­ist aldrei með­vitað hafa staðið í þeim sporum að hann teldi sig þurfa að finna ham­ingj­una en ómeð­vitað hafi hann án nokk­urs vafa leitað leiða til þess í barn­æsku og verið í sér­stakri þörf fyrir það þá.

Við byggjum upp hamingju okkar með réttum ákvörðunum
Aldrei með­vitað leitað Ágúst Borgþór blaða­maður og rit­höf­undur seg­ist aldrei með­vitað leitað að ham­ingj­unni. „Um tíma voru aðstæður erf­iðar. Efni voru ekki mikil þó að ekki teld­ist vera sára­fá­tækt á heim­il­inu. Skiln­aður, sjúk­dómur og dauðs­fall ollu sorg og ein­mana­leika. Við­bragðið við þessum aðstæðum var ann­ars vegar að sækja djúpt inn í eigin hug­ar­heim og hins vegar að gleðj­ast yfir smá­munum,“ segir hann. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ágúst Borgþór Sverr­is­son, blaða­maður og rit­höf­undur, seg­ist ekki velta ham­ingj­unni mikið fyrir sér þótt hver dagur snú­ist um eft­ir­sókn eftir henni. Hann segir að ástæðan fyrir þessu hugs­un­ar­leysi gagn­vart ein­hverju mik­il­væg­asta hug­taki mann­legrar til­veru sé lík­lega sú að hann hafi verið svo lán­samur að örlögin hafi úthlutað sér miklu af því sem færir fólki sanna ham­ingju. „Ég er kvæntur, á tvö upp­vaxin börn sem vegnar vel, á móður og systk­ini á lífi og er í góðu sam­bandi við allt þetta fólk. Auk þess er ég heilsu­hraustur sem og meiri­hluti ást­vina minna.

Það er nefni­lega í ofan­nefndu sem ham­ingjan er fólgin, umfram annað, og þess vegna er þakk­læti einn af ham­ingu­lyklunum mínum. Af því ég á þetta allt. Mér gengur þokka­lega vel í því að þakka fyrir mig í hug­anum fyrir það sem lífið hefur fært mér.

Við lifum á tímum ein­stak­lings­hyggju, hvert og eitt okkar er hvatt til þess að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár