Tölvuárás á Fréttablaðið sögð rússnesk hefnd

Tölvuárás á Fréttablaðið sögð rússnesk hefnd

Vef­ur Frétta­blaðs­ins verð­ur tek­inn nið­ur í kvöld biðj­ist rit­stjórn ekki af­sök­un­ar á því að hafa birt frétta­mynd frá Úkraínu. Ónafn­greind­ir rúss­neskir tölvu­hakk­ar­ar hófu skyndi­á­hlaup á vef blaðs­ins í morgun. Rúss­neska sendi­ráð­ið krafð­ist á sama tíma af­sök­un­ar­beiðni og seg­ir blað­ið hafa brot­ið ís­lensk lög. Steinn Stein­arr og Þór­berg­ur Þórð­ar­son hlutu dóma fyr­ir brot á sömu laga­grein þegar þeir þóttu hafa vegið að æru og heiðri Ad­olfs Hitler og Nasista.

Svo virð­ist sem umfangs­mikil tölvu­árás hafi verið gerð á frétta­vef Frétta­blaðs­ins í morgun. Vefurinn er þó enn virkur jafn­vel þó erf­ið­lega hafi gengið að halda fullri virkni hans. Rit­stjóri Frétta­blaðs­ins segir að þrátt fyrir hótun um umfangs­meiri árás, þar sem loka eigi vefnum í heild sinni klukkan 21 í kvöld, verði ekki orðið við kröfum ónafn­greindra aðila sem segj­ast bera ábyrgð á aðgerð­unum. Búið er að kæra þær til lög­reglu.

„Við urðum vör við það í morgun að skyndi­lega marg­fald­að­ist umferð á vef­inn og aug­ljóst var að það var liður í árás á vef­inn,“ segir Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri Frétta­blaðs­ins í sam­tali við Stundina. Örygg­is­að­gerðir voru þegar settar í gang af hýs­ing­ar­að­ila vefs­ins og þannig reynt að verja vef­þjóna fyrir frek­ari árás, sem er að sögn Sig­mundar yfir­vof­andi.

„Við fengum í morgun með stuttu milli­bili skila­boð þar sem farið er fram á að við biðjum Rússa afsök­unar á mynd­birt­ingu í frétt okkar á dög­unum, ellegar yrði gerð enn stærri árás á vef­inn og var hún tíma­sett klukkan níu í kvöld.“ Á svip­uðum tíma mættu tveir menn á rit­stjórn­ar­skrif­stofur Frétta­blaðs­ins og höfðu með­ferðis bréf frá sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, þar sem kraf­ist var afsök­un­ar­beiðni vegna sömu myndar.

Í tölvu­pósti sem sendur var á rit­stjórn blaðs­ins sagði: „Hvaða rétt hefur þér verið gef­inn til að móðga eða nið­ur­lægja tákn ann­arra ríkja!!! Ef þú biðst ekki afsök­unar fimmtu­dag­inn 11. ágúst fyrir klukkan 24:00 að Moskvu­tíma! Þá munum við hakka vef­síð­una þína og veita [sic] Síðan eftir að hafa hakkað dag­blaða­vef­inn þinn munum við birta mynd af kompro­mat á birt­ingu þinni og þú munt örugg­lega fá refsi­dóm, fyrir spill­ingu bandi­try o.s.frv.“

Dyramottan úkraínska

Rúss­neska sendi­ráðið sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem mót­mælt er mynd­birt­ingu blaðs­ins í við­tali við Val Gunn­ars­son sem er staddur í Kænu­garði, en þar mátti sjá ein­stak­ling stíga á rúss­neska fán­ann. Krafðist sendi­ráðið afsök­un­ar­beiðni og taldi að með því væri blaðið að vega að rík­is­merki Rúss­lands.

Myndin sem um ræðirMyndin sem styrinn stendur um. Hún fylgdi með frétt Frétta­blaðs­ins af ferð Vals Gunn­ars­sonar blaða­manns og rit­höf­undar um Úkraínu, sem nú sætir inn­rás Rússa. Á mynd­inni sést hvernig úkra­ínskir hús­eig­endur hafa ákveðið að mót­mæla yfir­gangi Rússa á tákn­rænan hátt með því að nota þjóð­fána inn­rás­ar­liðs­ins sem dyramottu.

Ivan Glinkin, fjöl­miðla­full­trúi rúss­neska sendi­ráðs­ins á Íslandi, segir sendi­ráðið enga hug­mynd hafa um hverjir beri ábyrgð á tölvu­árásinni. Spurður hvort sendi­ráðið telji slíka árás að ein­hverju leyti rétt­læt­an­legt við­bragð, við mynd­birt­ingu blaðs­ins, sagði Ivan að sendi­ráðið for­dæmdi allar ólög­legar aðgerðir, hverjar svo sem þær væru. Spurður hvort það ætti líka við um það ef tölvu­árás væri gerð á Frétta­blaðið til að hefna fyrir birt­ingu mynd­ar­innar sem sendi­ráðið telur móðgun við rúss­neska ríkið:

„Sendi­ráðið for­dæmir slíka aðgerð eins og aðrar sem brjóta gegn lögum.“

Í  frétt Frétta­blaðs­ins, var haft eftir Glinkin, tals­manni sendi­ráðs­ins, að hann teldi árás á tölvu­kerfi blaðs­ins ekki „hörð við­brögð í mál­inu“ Glinkin segir þetta ekki rétt. Hann hafi verið að vísa til bréfs sendi­ráðs­ins til Frétta­blaðs­ins og kröfu um afsök­un­ar­beiðni, en ekki tölvu­árásar. „Þessi ummæli sem höfð eru eftir mér voru alls ekki sögð í því sam­hengi sem þau birt­ast í þarna í frétt­inni. Ég var að vísa til þess að krafa okkar um afsök­un­ar­beiðni fæli ekki í sér hörð við­brögð,“ sagði Glinkin, upp­lýs­inga­full­trúi.

Þórbergur, Steinn og Sigmundur Ernir?

Í bréfi sem rúss­neska sendi­ráðið sendi Sigmundi Erni Rún­ars­syni, rit­stjóra Frétta­blaðs­ins í morgun, er þess kraf­ist að Frétta­blaðið biðj­ist afsök­unar á því að hafa birt mynd sem sýni niðr­andi með­ferð á þjóð­fána Rússa. Í bréf­inu segir að sendi­ráðið telji það skjóta skökku við að fjöl­mið­ill í landi sem stæri sig af því að fylgja vest­rænum gildum, skuli brjóta gegn vel­sæmi, siða­reglum blaða­manna og ekki síst lögum með mynd­birt­ing­unni. 

Minna á Þórberg og SteinRúss­neska sendi­ráðið krefst þess að Frétta­blaðið biðj­ist afsök­unar á frétta­mynd sem birt­ist í umfjöllun Vals Gunn­ars­sonar um líf Úkra­ínu­manna undir inn­rás Rússa í landið.

Rúss­neska sendi­ráðið vísar sér­stak­lega til þess að íslensk stjórn­völd hafi enn ekki fellt úr gildi laga­á­kvæði sem leggur bann við því að „smána erlenda þjóð eða erlent ríki, æðsta ráða­mann, þjóð­höfð­ingja þess, fána þess eða annað við­ur­kennt þjóð­ar­merki“ eigi yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi. Umrætt ákvæði er einna þekkt­ast fyrir það að á grunni þess hlutu tvö þjóð­kunn skáld dóma fyrir að mót­mæla Nasistum rétt fyrir miðja síð­ustu öld.

Bannað að móðga Hitler

Þannig hlaut rit­höf­und­ur­inn Þór­bergur Þórð­ar­son dóm fyrir að kalla Adolf Hitler „sadista“ í grein­ar­flokki sínum „Kval­ar­þorsti Nazista“ árið 1934. Sama ár fékk svo skáldið Steinn Stein­arr dóm fyrir brot á sömu laga­grein þegar hann í félagi við fjóra aðra menn skar niður haka­kross­fána af fána­stöng ræð­is­manns­bú­stað­ar­ins á Siglu­firði.

Ákvæðinu var síðan aftur beitt gegni Erpi Eyvind­ar­syni, rapp­ara og lífskúnstner, eftir að hann og tveir félaga hans köst­uðu Molotov-kok­teil að banda­ríska sendi­ráð­inu árið 2002. Sannað þótti að þeir hefðu ekki ætlað að valda skaða með athæf­inu heldur miklu fremur að skilja eftir ummerki. Þeir voru því dæmdir fyrir að smána með þessu hið erlenda ríki og þegna þess.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem nokkrir þing­menn Vinstri Grænna lögðu fram árið 2017, var lagt til að umrætt laga­á­kvæði yrði fellt úr lögum, meðal ann­ars með vísan til þess að það fæli í sér aug­ljós brot á tján­ing­ar­frelsi. Þar var sér­stak­lega vísað til dóma skáld­anna tveggja og sagt að til marks um fárán­leika laga­grein­ar­innar.

„Óhætt er að segja að sagan hafi farið mjúkum höndum um þau afbrot,“ sagði í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­mann­anna sem hlaut ekki braut­ar­gengi, í þau tvö skipti sem það var lagt fram. Utan­rík­is­ráðu­neytið lagð­ist gegn því að laga­greinin yrði afnumin. Var það rök­stutt meðal ann­ars með vísan til alþjóða­skuld­bind­inga eins og Vín­ar­samn­ings­ins um stjórn­mála­sam­band þjóða.

Endalok stríðsumfjöllunar

Frétta­blaðið hyggst ekki biðj­ast afsök­unar á því að hafa birt mynd­ina frá Úkraínu. Að sama skapi segir rit­stjóri blaðs­ins að úti­lokað sé að telja að  mynd­birt­ingin feli í sér lög­brot eins og rúss­neska sendi­ráðið heldur fram

„Við ætlum okkur að sjálf­sögðu ekki að verða við þess­ari kröfu, enda var þarna um að ræða frétta­mynd sem tekin er á átaka­svæði,“ segir Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, aðspurður um hvort til standi að bregð­ast við kröfum sendi­herr­ans eða þeirra sem hafa sagst vera ábyrgir fyrir tölvu­árásinni. 

Sig­mundur segir að full­trúar sendi­ráðs­ins hafi lítið gefið færi á sam­tali um málið í morgun en að Frétta­blaðið hafi sett sig í sam­band við utan­rík­is­ráðu­neytið íslenska sem lýst hafi yfir stuðn­ingi við mál­stað blaðs­ins, rétt eins og stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins hyggst gera.

Sig­mundur segir að ef fara ætti að kröf­unni væri svo gott sem hægt að hætta umfjöllun um stríð og átök. Enda liði varla sú vika að ekki væru birtar frétta­myndir þar sem sæist til fólks brenna fána erlendra ríkja, í ein­hvers konar mót­mæla­skyni vegna deilna eða stríðs­á­taka. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Ég er þeirrar skoðunar að óþarfi hafi verið að birta þessa mynd. Hún segir svo sem ekki neitt. Í staðinn hefði verið rétt að birta fleiri myndir af voðaverkum rússneskra aðila í úkraínu. Það er mikilvægt að sýna að rússar eða réttara sagt þeir sem standa á bak við Pútin fremja stríðsglæpi af verstu tegund í Úkraínu næstum hvern dag. Við verðm að lýsa viðurstyggð á verkum rússa en ekki að niðurlægja fánan þeirra.
    -2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Rússneska sendiráðið krefst þess að Fréttablaðið biðjist afsökunar á fréttamynd sem birtist í umfjöllun Vals Gunnarssonar um líf Úkraínumanna undir innrás Rússa í landið."
    - Sendiráð eiga ekki að starfa með þessum hætti. Allar athugasemdir eða mótmæli eiga að berast stjórnvöldum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár