Jöklar í Ölpunum hafa rýrnað og hætta á uppskerubresti víða um heim

Jöklar í Ölpunum hafa rýrnað mikið í þeim miklu hitum sem verið hafa und­an­farnar vikur í Evrópu. „Jökl­arnir þar hafa átt mjög bágt í sumar og menn sjá rýrn­un­ina með berum augum,“ segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur. Vegna mik­illa þurrka af völdum sögu­legrar hita­bylgju víða um heim er óvíst með upp­skeru á svæðum sem standa undir drjúgum hluta mat­væla­fram­leiðslu heims­ins.

Hvert hita­metið á fætur öðru hefur fallið víða um heim síð­ustu vikur.
Hæsti hit­inn sem mælst hefur á byggðu bóli það sem af er sumri eru 48,7 gráður. Það var í Suð­austur-Íran í vik­unni.  

Þá hefur hiti farið í  45 gráður í Xinjiang-hér­aði í Kína en þar búa um 25 millj­ónir manna. Gríð­ar­lega heitt hefur verið í Mið-Asíu þó minna hafi verið fjallað um það í fjöl­miðlum á Vest­ur­löndum. Í Túrk­menistan og Úsbekistan fór hiti í 47 gráður og aldrei fyrr hefur verið jafn heitt í júní í Kasakstan. Í Tajikistan fór hiti hæst í 43 gráður. 

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur.

„Það eru tölu­verðar breyt­ingar á sum­ar­veðr­átt­unni. Það er ekki aðeins hlýrra á norð­ur­hveli jarðar heldur hafa hlý­indin áhrif á vinda­kerfin þannig að það hefur hægt á vest­an­vind­unum í háloft­unum sem blása hér umhverfis norð­ur­hvel. Vind­ur­inn er nú öld­óttur þannig að hlýja loftið kemst norðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár