„Ætli hamingjan í huga mínum felist ekki í einhvers konar sátt við mig sjálfa og umhverfið sem ég lifi í,“ segir Harpa Stefánsdóttir, arkitekt og doktor í skipulagsfræðum. Mikilvægir hornsteinar hamingju eru að hennar mati friður, náungakærleikur og jafnræði. Harpa segir að sáttin felist í þeim áskorunum sem hún setji sér, að hún geti sigrast á þeim þannig að jafnvægi ríki og gott samlyndi við samferðafólk sitt. „Ég held að við manneskjurnar séum félagsverur og hluti af næringu okkar felist í þörf fyrir gefandi samneyti við aðra. Sennilega er þetta þó í mismiklum mæli frá einum til annars. Hvaða áskoranir henta hverjum og einum er sennilega líka mismunandi. Ég þarf allavega áskoranir sem eru uppbyggilegar og við mitt hæfi, annars líður mér eins og lífið hafi takmarkaðri tilgang. Þegar ég sigrast á þeim áskorunum sem ég set mér þá finn ég til gleði. Það þarf líka jafnvægi milli þess að …
Útivist og hreyfing í góðum hópi eykur lífsgleði
Harpa Stefánsdóttir hefur þurft að rækta hamingjuna á nýjan hátt síðustu ár. Þar hefur spilað stærstan þátt breytingar á fjölskyldumynstri. Hún hefur auk þess um árabil búið í tveimur löndum og segir að sitt daglega líf hafi einkennst af að hafa þurft að hafa fyrir því að sækja sér félagsskap og skapa ný tengsl fjarri sínu nánasta fólki. Harpa talar um mikilvægi hópastarfs tengt útivist og hreyfingu en hún telur að hreyfing í góðum hópi stuðli að vellíðan.
Mest lesið

1
Treysta á tryggð heimamanna
Í mekka galdrasagna á Íslandi á Ströndum er handverksbrugghúsið Galdur á Hólmavík. Brugghúsið er í samfélagseigu og hefur gengið á ýmsu í uppbyggingunni. „Þetta hefði aldrei verið hægt nema með stuðningi úr opinberum sjóðum,“ segir Finnur Ólafsson.

2
Árni Guðmundsson
Það er þetta með að skipta sér af og láta sig varða
Árni Guðmundsson er einn fremsti forvarnarsérfræðingur þjóðarinnar. Hann segir lærdóminn um að skipta sér af, að láta sig varða málefni þeirra sem minna mega sín, stærstu lífslexíuna.

3
Stefán Ingvar Vigfússon
Mjódd via Höfðatorg: Tækifærið er núna
Hægt og hægt hættir það að skipta okkur máli hvort manneskjan sé til, hvort tungumálið sé lifandi eða hvort vagninn fari um Höfðatorg á leiðinni í Mjódd.

4
Rubio og Lavrov ræddu möguleika á samtali Trumps og Pútíns
Samskipti Bandaríkjanna og Rússlands fara vaxandi þrátt fyrir að flest Vesturlönd hafi sniðgengið Rússland frá innrásinni í Úkraínu. Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio sagðist ekki hafa átt formlegan fund með rússneskum starfsbróður sínum, Sergej Lavrov, en rætt stuttlega hvort leiðtogar ríkjanna gætu átt samskipti í næsta mánuði.

5
Mónakó tekið af gráa lista FATF
Mónakó hefur verið tekið af gráum lista FATF eftir tveggja ára aukið eftirlit og umfangsmiklar úrbætur í baráttunni gegn peningaþvætti. Ísland var á sama lista á árunum 2019 til 2020, en vera landsins á honum olli meðal annars vandræðum með millilandagreiðslur og vakti spurningar hjá erlendum lánveitendum.

6
Trump freistar þess að stöðva „bláu bylgjuna“
Kannanir benda til að demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni. Úrslitin gætu veitt þeim færi á að rannsaka embættisverk Donalds Trump.
Mest lesið í vikunni

1
Hátt í fjörutíu vitni í aðalmeðferð meints eltihrellis
Íris Helga Jónatansdóttir mun sitja ein í Héraðsdómi Reykjaness á mánudaginn og svara til saka. Hátt í fjörtíu vitni hafa verið boðuð vegna aðalmeðferðar málsins sem tekur fjóra daga.

2
Fimmtíu sagt upp hjá borginni í dag
Fækka á stöðugildum um 74 í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Fimmtíu verður sagt upp og ráðningar verða stöðvaðar.

3
Verður Trump taminn eftir þingkosningar?
Evrópa gerir ekki ráð fyrir Bandaríkjunum í stuðningi við Úkraínu þótt Demókratar vinni stórsigur í þingkosningum. Óttast er að ósigur Trumps geti knúið hann til dáða eða ódæða á alþjóðavettvangi.

4
Sautján missa vinnuna hjá SORPU
SORPA hefur sagt upp tíu starfsmönnum og ákveðið að endurnýja ekki tímabundna ráðningarsamninga við sjö til viðbótar. Starfsfólki fækkar því um sjö prósent. Aðgerðirnar koma í kjölfar umfangsmikilla uppsagna hjá Reykjavíkurborg í gær og á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist verulega á milli ára.

5
Reiður Trump ræðst gegn Norðmönnum
Bandaríkjaforseti vill refsa Norðmönnum vegna þess að óháð Nóbelsnefndin sæmdi hann ekki friðarverðlaunum.

6
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
Vísitala neysluverðs rís um 0,44 prósent í október, aðallega vegna hærra eldsneytisverðs.
Mest lesið í mánuðinum

1
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

2
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.

3
Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

4
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

5
Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir
Ég, hóran
Fimmtíu og sjö karlmenn eru grunaðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðguðu henni í hópi. Hrafnhildur Sigmarsdóttir segir brandara um „hórur“ í ræktinni endurspegla sama tilkall til kvenna.

6
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
Nafnlaus pistill um Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttakonu Sýnar hefur verið fjarlægður af vef DV. Eigandinn er sagður nýta sér nafnlausa pistla í áróðursskyni til stuðnings ríkisstjórnarinnar. Frosti Logason og Bogi Ágústsson voru meðal þeirra sem tóku undir gagnrýnina á skrifin.






































Athugasemdir