Einhverf listakona á litrófi

Frida Adriana Martins var greind með heila­lömun þegar hún var ungbarn en segir að þó að líf hennar sem fjöl­fatlaðrar konu hafi verið fullt af hindrunum sé tilfinninga­þreytan vegna einhverf­unnar erfiðust. Hún leiði af sér kvíða og þunglyndi sem séu til komin vegna stöðugrar glímu við samfélag sem geri ekki ráð fyrir einhverfu fólki.

Frida Adriana segir að þegar fólk spyrji hvernig einhverfan lýsi sér biðji hún það að ímynda sér að vera vafin inn í plast sem leiðir í gegnum sig alltof mikið ljós og hávaða. Þannig líði henni daglega
Frida Adriana segir að þegar fólk spyrji hvernig ein­hverfan lýsi sér biðji hún það að ímynda sér að vera vafin inn í plast sem leiðir í gegnum sig alltof mikið ljós og hávaða. Þannig líði henni dag­lega Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er einhverf listakona á litrófi,“ segir Frida Adriana, sem var greind með ódæmi­gerða einhverfu fyrir ellefu árum, þegar hún var þrítug. „Maður þarf því miður að fá allt staðfest á pappír til þess að það sé tekið mark á manni. Ég hafði lengi vitað að mínar andlegu áskoranir og öðruvísi skynjun væru ekki bara vegna heila­lömunarinnar þó að fókus læknanna væri á henni. Einhverfan hefur hins vegar að mörgu leyti haft meiri áhrif á mitt líf en heila­lömunin,“ segir Frida og bætir við að þar sem hún hafi verið fullorðin þegar hún var greind einhverf hafi hún getað valið þau orð sem hún noti þegar hún segi frá greiningunni. „Sjálfri finnst mér skrýtið að segjast „vera með“ einhverfu, það er eins og að vera með hatt en það er hægt að taka hattinn af sér en þú berð einhverfuna alla ævi, þú tekur hana ekki af þér og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ein í heiminum

ViðtalEin í heiminum

„Við erum huldu­fólkið í kerfinu“

Guðlaug Svala Stein­unnar Kristjáns­dóttir segir að einhverft fólk sé frá blautu barns­beini gaslýst daglega því að stöðugt sé efast um upplifun þess. Það leiði af sér flóknar andlegar og líkamlegar áskoranir en stuðningur við fullorðið einhverft fólk sé nánast enginn. „Við erum huldu­fólkið í kerfinu,“ segir Guðlaug sem glímir nú við einhverfu­kulnun í annað sinn á nokkrum árum.

10 mín. lestur

ÚttektEin í heiminum

Einhverf án geðheil­brigðis­þjónustu: „Háalvarlegt mál“

Stöðug glíma við samfélag sem gerir ekki ráð fyrir einhverfu fólki getur leitt til alvarlegra veikinda. Þetta segja viðmælendur Stundarinnar sem öll voru fullorðin þegar þau voru greind einhverf. Framkvæmda­stjóri Einhverfu­samtakanna segir þau tilheyra hópi sem fái ekki lífs­nauðsynlega þjónustu sem sé lögbrot. Sænsk rannsókn leiddi í ljós að einhverfir lifi að meðaltali 16 árum skemur en fólk sem ekki er einhverft. „Staðan er háalvarleg,“ segir sálfræðingur sem hefur sérhæft sig í einhverfu.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár