Úkraínumenn snúa heim en óttinn ríkir enn

Fjöldi þeirra sem fara aftur heim til Úkraínu er nú mun meiri en þeirra sem fara. Talið er að um fimm millj­ónir Úkra­ínu­manna, sem flúðu stríðs­á­tökin í land­inu eftir inn­rás Rússa, hafi nú þegar snúið heim, um 60 pró­sent alls flótta­fólks­ins. Fleiri hyggj­ast halda heim á leið á næst­unni.

Úkraínumenn snúa heim en óttinn ríkir enn
Heimili þús­unda flótta­manna Varsjá er um stund­ar­sakir heim­ili hund­ruða þús­unda úkra­ínskra flótta­manna. Hið sama má segja um aðrar pólskar borgir. Hins vegar hefur hægst mjög á flótta­manna­straumnum upp á síðkastið og Úkra­ínu­menn snúa nú heim í miklu mæli. Mynd: Anna Romandash

Alls staðar blasa við blá og gul flögg, lím­miðar og til­kynn­ingar á úkra­ínsku. Þannig heilsar Varsjá mér. Höf­uð­borg Póllands sem varð svo mik­il­væg flótta­fólki frá Úkraínu. Varsjá, sem er aðeins fjóra tíma frá landa­mærum Póllands og Úkraínu, er orðin heim­ili hund­ruð þús­unda flótta­manna, um stund­ar­sakir.

Lest­ar­stöðvar og rútu­mið­stöðvar eru þaktar skiltum og merk­ingum ætl­uðum til að leið­beina fólk­inu frá Úkraínu. Sjálf­boða­liðar eru reiðu­búnir að útskýra fyrir þeim sem nýkomin eru hvar aðstoð er að finna og leið­bein­ingar um hvernig hægt er að fá ókeypis mat og hús­næði. 

Þó er straum­ur­inn af flótta­fólki mun minni en var. Varsjá var við þol­mörk í febr­úar og mars – sama átti við um aðrar pólskar borgir – en jafn­vægi hefur verið náð. Enn dvelja tug­þús­undir nýrra íbúa frá Úkraínu vítt og breitt um borg­ina en þeir hafa náð að aðlag­ast aðstæðum eins og er. Fáir komu til Póllands frá Úkraínu í maí­mán­uði. 

„Fólkið frá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“
ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár