Túlkur Gorbatsjevs: „Hvernig á að forðast þriðju heimsstyrjöld“

Pavel Palazhchenko, sem var sov­éskur og síðar rúss­neskur diplómati og túlkur Gor­batsjevs á leið­toga­fund­inum í Reykja­vík árið 1986, segir að stöðva eigi hern­að­ar­að­gerðir í Úkraínu eins fljótt og auðið er. 36 árum eftir fund­inn í Höfða er Palazhchenko aftur kom­inn í stutta heim­sókn til Reykja­víkur og féllst á að ræða við Andrei Mens­henin blaða­mann um leið­toga­fund­inn og þær breyt­ingar sem urðu í kjöl­far hans, kjarn­orku­vopn og stríðið í Úkraínu. Hann segir að engar alls­herj­ar­við­ræður um örygg­is­mál hafi orðið milli Rúss­lands og Evrópu eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna.

Túlkur Gorbatsjevs: „Hvernig á að forðast þriðju heimsstyrjöld“

Pavel Palazhchenko, sem er einnig þýð­andi og túlkur í Evr­ópu­ráð­inu og hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, kom fyrst til Íslands í októ­ber 1986 sem túlkur sov­éska leið­tog­ans Mikhaíls Gor­batsjevs á leið­toga­fundi með Ronald Reagan, for­seta Banda­ríkj­anna. Þrátt fyrir að samn­ing­ur­inn um kjarn­orku­af­vopnun hafi ekki verið und­ir­rit­aður í Höfða hefur oft verið litið á leið­toga­fund­inn sem óop­in­ber enda­lok kalda stríðs­ins. Palazhchenko er nú í stuttri heim­sókn á Íslandi og segir hér meðal ann­ars frá því hvernig Reagan og Gor­batsjev, þrátt fyrir að vera afar ólíkir menn, náðu að finna sam­eig­in­legan snerti­flöt og koma í veg fyrir að nýtt stríð gæti brot­ist út. Hann segir einnig frá því hvernig fund­ur­inn í Reykja­vík hafði áhrif á nútíma­kjarna­vopna­búnað beggja landa og frá for­sendum inn­rás­ar­innar í Úkraínu árið 2022.

Hvernig var Ísland árið 1986? Hvernig birt­ist Ísland full­trúum Sov­ét­ríkj­anna sem komu hingað í fyrsta skipti og ætl­uðu að semja við Banda­ríkja­menn?

Mín fyrstu kynni af …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár