Trú í stríði: Múslimaleiðtogi ver Úkraínu

Saga af austur-úkra­ínskum imam sem hefur tekið upp vopn til að verja land sitt.

Trú í stríði: Múslimaleiðtogi ver Úkraínu

Hann yfir­gaf mosk­una sína þegar Rússland réðst inn í landið og gerð­ist vopn­aður sjálf­boða­liði. Yevhen Hlushchenko er imam, íslamskur trú­ar­leið­togi í menn­ing­ar­mið­stöð múslima. Hann er frá Kharkiv, sem er næst­stærsta borg Úkraínu, með rúm­lega milljón íbúa og aðeins 30 kíló­metra frá landa­mærum Rúss­lands, og nálægt skot­mark fyrir rúss­neska her­menn. 

 „Þegar inn­rásin hófst ákváðum við fjöl­skylda mín og ég að við myndum ekki fara úr landi,“ segir Hlushchenko. Hann er á miðjum fer­tugs­aldri og faðir þriggja ungra barna. 

 „Ég fór með þau á öruggan stað og sneri síðan aftur til að ganga í her­inn.“ Nú er hann her­maður.

 „Við reynum að berjast gegn eyðileggingarhvöt hermannanna“

Hann hefur verið við­loð­andi Úkra­ínu­her síðan 2017, þegar hann gerð­ist kapel­lán í hernum. Það er and­legt starf innan hers­ins: Kapellán leiðir bænir, veitir sið­ferði­lega leið­sögn og stuðn­ing við her­menn þegar þeir þurfa á sam­tali eða samúð að halda. Úkra­ínski her­inn er með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórarinn Ólafsson skrifaði
    ég er áskrifandi og get ekki lesið þetta...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

17 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár