Hin margklofna Moldóva á milli Rúmeníu og Rússlands

Yfirvöld í Transni­stríu ásök­uðu nýlega yfir­völd í Úkraínu um að hafa gert árásir á skot­mörk þar í landi. Hvað er Transni­stría? kunna sumir að hafa spurt, enda er það ekki að finna á landa­kortum. Það er aðskiln­að­ar­hérað í Moldóvu, sem vissu­lega er að finna á kort­inu. En jafn­vel það ríki er okkur að mestu ókunn­ugt.

Hin margklofna Moldóva á milli Rúmeníu og Rússlands
Á leið frá Transni­stríu Farþegar í rútu á leið um landamæra­stöð í Varnitu milli Moldóvu og upp­reisn­ar­hér­aðs­ins Transni­stríu bregða á leik. Mynd: Daniel MIHAILESCU / AFP

Eitt sinn var ég í þýsku­námi í Berlín ásamt nokkrum Moldóvum og það kom mér á óvart þegar þeir sögðu að Vlad Tepes, sjálfur Drakúla, væri þjóð­hetja þar í landi. Hann er jú einnig þjóð­hetja Rúmena sem þeir deila tungu­máli með. Og hvað greinir þá Moldóva frá Rúmenum? Eins og svo oft verður að leita aftur í sög­una. 

Nútíma­sögu Moldóvu má rekja til árs­ins 1359 þegar Bogdan I. kom til Moldóvu með menn sína frá Mara­mures í Karpa­tíu­fjöllum, sem nú er á mörkum Rúmeníu og Úkraínu. Lýsti hann yfir sjálf­stæði frá kon­ungi Ungverja sem fram að því hafði ráðið hér­að­inu. Ríki þetta var undir vernd stór­veld­anna Póllands og Ung­verja­lands á víxl en um miðja 15. öld hófu Tatarar frá Krím­skaga og Tyrkir að sunnan að herja á það. Það var einmitt á þessum tíma sem Vlad Tepes varð fursti í nágranna­rík­inu Vallakíu og hóf að stjak­setja Tyrki af miklum móð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár