Að deyja úr fordómum

Elísabet Jök­uls­dóttir er með nýrna­bilun á loka­stigi eftir röð lækna­mistaka. Ríkið hefur þegar við­ur­kennt mis­tökin og ekki síður þá stað­reynd að ein­kenni og beiðnir Elísa­betar um aðstoð voru huns­aðar árum saman. Lögmaður hennar segir að í mál­inu krist­all­ist for­dómar gegn geð­sjúkum sem tals­maður Geð­hjálpar segir allt of algenga.

Að deyja úr fordómum

„Ég er núna komin á loka­stig nýrna­bil­unar. Sem þýðir að nýrun starfa á 15% afköstum,“ segir Elísabet Jök­uls­dóttir skáld­kona sem bíður þess nú að kom­ast í lífs­nauð­syn­lega líf­færa­ígræðslu. Fjöl­margir hafa boð­ist til að gefa henni nýra en enn sem komið er hefur hent­ugur gjafi ekki fund­ist.

Á meðan hefur ástand Elísa­betar versnað og hún er því komin á biðlista eftir nýra í Svíþjóð. Bið sem reiknað er með að taki ekki meira en eitt og hálft ár.

Hún glímir við þrek­leysi og margs konar lífs­gæða­skerð­ingu. Segist aldrei kom­ast upp með minna en 12 tíma svefn á sól­ar­hring, svo dæmi sé tekið. Hún þarf líka að gæta sér­stak­lega að matar­æði sínu. Salt er til að mynda illa séð, fyrir þá sem eru í stöðu eins og Elísabet. Og fleira.

Lyfjagjöf án eftirlits

Nýrun gegna lífs­nauð­syn­legu hlut­verki í lík­am­anum, enda eru þau mik­il­væg­asta ráð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thor Einarsson skrifaði
    Ég er með nírnabilun kreatine hjá mér mæltist 204 og það sem læknir á bráðamóttöku sagði við mig nírun í þér eru eins og skítugan gólftuskur
    0
  • AR
    Auðbjörg Reynisdóttir skrifaði
    Og stóru spurningunni er ósvarað: Hvað hefur verið gert til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig? Ekki hvað á að gera heldur hvað hefur verið gert! Það er nokkuð sem við þurfum að fá að heyra og sérstaklega Elísabet.
    3
  • Matthildur Kristmannsdóttir skrifaði
    Ég var lögð inn á geðdeid þrátt fyrir að ég grenjandi sagði lækninum að veikindi mín hefðu ekkert með geðið að gera! Ég mátti ekki liggja í rúminu og sofa! Ég átti að blanda geði við fólkið í dagstofunni og matsalnum. Ég svaf í dagstofunni og fram á borðið í matsalnum. Einn daginn sat ég til borðs með konu að nafni Elísabet, hún talaði í símann og sagði þessa setningu: Þetta hefur ekkert með geðið að gera, ég þekki minn líkama það vel að nú er ég pottþétt á því að þetta er líkamlegt. Þegar símtalinu lauk sagði ég henni að ég vissi líka að mín veikindi væru ekki á geði, ég væri ekki sammála læknunum. Við ræddum þetta fram og til baka, hvorug okkar hafði fengið rannsóknir sem hefðu getað svo auðveldlega leitt í ljós hvað amaði að okkur. Ristilspeglun í mínu tilviki. Gott að ríkið viðurkenndi mistökin í hennar tilviki.
    15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár