Lærdómurinn af því að eignast fatlað barn og skilja

Dagbjört Ásbjörns­dóttir á tví­bura­syni, annar þeirra er fatl­aður og upp­lifir hún oft ham­ingj­una í því sem aðrir taka sem sjálf­sögðum hlut. Hún ákvað að finna ham­ingj­una eftir skilnað. „Ég held að ástin færi manni ekki ham­ingj­una; ástin bætir alltaf ofan á ham­ingj­una.“

Lærdómurinn af því að eignast fatlað barn og skilja

Dagbjört Ásbjörns­dóttir á fjórtán ára tví­bura­syni. Annar þeirra er mjög ein­hverfur og með mikla þroska­hömlun, sem hefur kennt henni svo margt. „Oft finnst mér ham­ingjan fel­ast í hlutum sem við hin tökum kannski sem sjálf­sögðum hlut; ég upp­lifi ákveðna ánægju og vellíðan í ein­földum hlutum. Við förum mikið út, svo sem niður í fjöru eða að heim­sækja hunda á hunda­svæði. Þessi ein­fald­leiki veitir mér ánægju og ham­ingju. Bara að vera.“

Dagbjört segir að snemma hafi verið ljóst að allt væri ekki eins og það ætti að vera hvað annan son hennar varðar. „Ákveðin tengsla­myndun hjá honum var frá­brugðin. Hann fékk form­lega grein­ingu þegar hann var að verða þriggja ára. Það var mikið sjokk; allir for­eldrar ganga út frá því að eign­ast heil­brigð börn og að allt verði í lagi. Svo stóð ég frammi fyrir því að barnið mitt myndi alltaf þurfa mik­inn stuðn­ing og að lífið yrði öðru­vísi. Núna eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár