742. spurningaþraut: Hér er spurt um draum sérhvers manns og fleira

Fyrri auka­spurning:

Þið haldið kannski að það sem sést á myndinni hér að ofan sé einhvers konar hálsfesti eða þvíumlíkt. En því fer fjarri. Þetta er í rauninni „bók“ skrifuð með hnútum. Hvaða þjóð „skrifaði“ þessa „bók“?

***

Aðal­spurningar:

1.  Nærri helmingur Bandaríkja­manna telst til einhverrar af fjölmörgum trúar­hreyfingum mótmælenda. En hvaða trúar­hópur kemur næstur þar á eftir?

2.  Og hversu hátt hlutfall Bandaríkja­manna tilheyrir þeim trúarhópi? Hér má muna þremur prósentum til að frá.

3.  14. júlí er hátíðisdagur í Frakk­landi. Hvað kallast dagurinn?

4.  Hvað kallast rucola á íslensku?

5.  En hvað er kantarella?

6.  Hvað hét sú þjóðlaga­skotna hljómsveit sem gaf út á Íslandi lagið Litlir kassar árið 1974?

7.  Hvaða vinsæla kvikmynd gerist á tunglinu Pandóru við sólstjörnuna Alpha Centauri A?

8.  Í rauninni heitir tungl eitt í okkar sólkerfi líka Pandóra. Við hvaða reikistjörnu er tunglið Pandóra?

9.  Steinn Steinarr orti: „Í draumi sérhvers manns er ...“ hvað?

10.  Hvaða ár settist Katrín Jakobs­dóttir fyrst á Alþingi?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Kaþólikkar.

2.  Rétt svar er 21 prósent, svo stig fæst fyrir 18-24 prósent.

3.  Bastillu­dagurinn.

4.  Kletta­salat.

5.  Sveppur.

6.  Þokkabót.

7.  Avatar.

8.  Satúrnus.

9.  „... fall hans falið.“

10.  2007.

***

Svör við auka­spurningum:

Inkar í Suður-Ameríku notuðu „hnúta­letrið“ á myndinni.

Á neðri myndinni er Díana prinsessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár