Allt eðlilegt hér

Hvað er á döf­inni næstu vik­urnar?

Allt eðlilegt hér

Jónas Sig

Hvar? Bæjarbíó
Hvenær? 14. apríl
Miðaverð: 6.990 kr.

Jónas Sig og félagar verða í Bæj­ar­bíói á skír­dag, 14. apríl.  „Við ætlum að vera hrárri og rokk­aðri en við höfum verið að spila und­an­farið eftir að Milda hjartað platan kom út,“ segir Jónas. „Það hefur byggst upp mjög fal­leg og gef­andi hefð fyrir góðum hópi fólks sem sækir þessa tón­leika hjá okkur í Bæj­ar­bíói og mikil spenna í hópnum okkar að kom­ast aftur á svið og heilsa upp á fólkið okkar.“  Jónas og félagar verða síðan á Græna hatt­inum, Akureyri yfir pásk­ana á laug­ar­dag og sunnu­dag. Þar má gera ráð fyrir góðri stemn­ingu, enda hafa Jónas og félagar ræktað sam­bandið sitt við Akur­eyr­inga árum saman. 

Úti í Eyjum

Hvar? Elborg­ar­sal Hörpu
Hvenær? 21. apríl - sum­ar­dag­inn fyrsta
Miðaverð: 6.990 til 12.990

Eyjatón­leikar verða haldnir í Eld­borg­ar­sal Hörpu fimmtu­dags­kvöldið 21. apríl. Fjöldi frá­bærra lista­manna koma þá saman og leika öll ynd­is­legu Eyja­lögin. Það er löngu kom­inn tími á að við fáum tæki­færi á að rifja upp öll upp­á­halds Eyja­lögin, syngja með, upp­lifa sanna Eyja­stemn­ingu, koma saman og gleðj­ast.

Í gegnum tíð­ina hefur verið blandað saman lands­þekktu lista­fólki og lista­fólki úr Eyjum. Á þessum 10 árum er fjöldi lista­manna kom­inn langt á annað hundraðið. Þetta árið fáum við Magna Ásgeirs, Stefaníu Svavars, Kristján Krist­jáns­son (KK), Hreim Örn Heim­is­son, höf­und Þjóð­há­tíð­ar­lags­ins í fyrra, Magnús Kjartan Eyj­ólfs­son, brekku­söngv­ara 2021 og Eyja­fólkið Rúnar Kristin Rún­ars­son, Söru Renee og Unu Þor­valds­dóttur til að syngja. 

Hljóm­sveit­ar­stjóri: Þórir Úlf­ars­son

Að venju verða þarna flutt mörg af bestu og ynd­is­leg­ustu lögum Eyjanna.

Allt eðlilegt hér

Hvar? Bæjarbíó
Hvenær? 22. og 23. apríl
Miðaverð: 5.990 kr.

Saga Garð­ars­dóttir og Snjólaug Lúð­víks­dóttir verða með uppi­stands­sýn­ing­una „Allt eðli­legt hér“ í Bæj­ar­bíói 22. og 23. apríl. Þetta var ákveðið mjög hratt. Þær voru báðar æstar og Bæjarbíó til í slag­inn svo þetta var ákveðið á einum degi. Þá þurftu þær að byrja að semja sýn­ing­una. „Okkur finnst nafnið skemmti­legt því að allt er orðið eðli­legt aftur hvað varðar sam­komu­tak­mark­anir og svo er þetta eitt­hvað sem maður segir líka þegar hlut­irnir eru ekki alveg eðli­legir, „jájá allt eðli­legt hér“. Snjólaug mun tala um hvað það er leið­in­legt að deita skrýtið fólk og hvað hún öfundar Sögu af stabílum lífs­stíl. Saga mun tala um hvað hún er mikið í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inum núna og hvað hún öfundar Snjó­laugu af ævin­týra­legu djamm­lífi.

Mannakorn í Hofi

Hvar? Hof
Hvenær? 29. apríl
Miðaverð: 7.990–9.990 kr.

Það eru fáir lista­menn sem hafa sett svip sinn jafn sterkt á íslenska tón­list­ar­sögu og Manna­korn. Í 40 ár hefur bandið gefið út hvern hitt­ar­ann á fætur öðrum sem hvert ein­asta manns­barn þekkir. Hver man ekki eftir lögum eins og Reyndu aftur, Ein­hver­staðar ein­hvern tím­ann aftur, Elska þig, Bragga­blús, Gamli góði vinur, Ég elska þig enn, Óralangt í burtu, Á rauðu ljósi, Sölvi Helgason, Samferða, Garún og Ó þú? Pálma Gunnars, Magga Eiríks og Ellen Krist­jáns til halds og trausts verður lands­lið hljóð­færa­leik­ara.

Erró: Sprengikraftur mynda

Hvar? Lista­safn Reykja­víkur, Hafn­ar­hús
Hvenær? til 29. sept­em­ber 
Miðaverð: 1.950 kr. full­orðnir, 1.200 kr. náms­menn

Yfir­lits­sýn­ingin á verkum Erró, „SPRENGIKRAFTUR MYNDA“, er skipu­lögð eftir tíma og þemum og spannar list­rænan feril Errós í heild í öllum sínum fjöl­breyti­leika fram til nýj­ustu mál­verka hans og klippi­verka. Hér eru verk frá yfir sjö­tíu ára ferli. Sýn­ing­unni er ætlað að leiða í ljós hvernig Erró hefur auðgað og end­ur­nýjað efn­is­safn sitt með tím­anum þannig að það tekur nú til sér­hvers mögu­legs mynd­ræns umdæmis, frá mál­ara­list og kvik­myndum til teikni­mynda gegnum vís­indi og tækni, sögu og stjórn­mál, aug­lýs­ingar, áróður og eró­tík. Hér má sjá hvernig hann hefur end­ur­skapað og end­ur­byggt sjón­rænan efni­við sinn í þeim til­gangi að mynda and­stöðu­vett­vang gegn hvers konar yfir­valdi, og til að skapa far­veg fyrir hið sífrjóa hug­ar­flug sitt.

Gabriel Fauré - Requiem

Hvar? Hall­gríms­kirkja
Hvenær? 16. apríl kl. 17
Miðaverð: 4.000 kr.

Laug­ar­dag­inn 16. apríl kl. 17 flytur Kór Lang­holts­kirkju Sálu­messu eða Requiem eftir franska tón­skáldið Gabriel Fauré (1845–1924) undir stjórn Magnúsar Ragn­ars­sonar.

Sálu­messan er eitt þekktasta verk hans og hefur notið gíf­ur­legra vin­sælda frá því hún var frum­flutt árið 1888. Sjálfur sagði Fauré sálu­messu sína ein­kenn­ast af trú á eilífa hvíld í dauð­anum. Í stað þess að mála stórar og lit­ríkar myndir af ógn og hryll­ingi hins hinsta dóms beinir Fauré sjónum sínum að kyrrð, ró og himneskri feg­urð.

Ein­söngv­arar á tón­leik­unum eru þau Álf­heiður Erla Guð­munds­dóttir, sópran og Fjölnir Ólafsson, baritón. Björn Steinar Sól­bergs­son spilar með á orgel.

Hægt er að kaupa miða á tix.is og við inn­gang­inn.

Hvanndalsbræður

Hvar? Græni hatt­ur­inn, Akureyri
Hvenær? 23. apríl
Miðaverð: 4.300 kr.

Hljóm­sveitin Hvann­dals­bræður fagnar 20 ára starfs­af­mæli á þessu ári en þeir hafa lík­lega komið oftar fram á Græna hatt­inum en nokkur önnur hljóm­sveit enda fer­ill þeirra sam­ofin sögu Græna hatts­ins. Á efn­is­skránni þetta kvöld verða gömlu og góðu Hvann­dalslögin en einnig nokkur nýleg af nýj­ustu plötu þeirra, Hraun­dranga, sem kom út árið 2020. Stemn­ingin hjá Hvann­dals­bræðrum á Græna hatt­inum er ótrú­lega skemmti­leg, eins og þeir vita sem þekkja til, og kom­ast iðu­lega færri að en vilja. Það vill svo til að einmitt þetta kvöld mun fiðlu­leik­ar­inn knái Valmar Valjaots fagna 55 ára afmæli sínu og er því afar lík­legt að hann muni flytja að minnsta kosti eitt lag á móð­ur­máli sínu, eist­nesku.

KK - Lucky One 30 ára

Hvar? Háskóla­bíó
Hvenær? 23. apríl
Miðaverð? 4.990 - 8.990 kr.

Í til­efni af 30 ára útgáfu­af­mæli meist­ara­stykk­isins LUCKY ONE verða tón­leikar í Háskóla­bíói 23. apríl 2 og allir sem spil­uðu á plöt­unni verða með. „Við ætlum líka að spila fullt af öðrum lögum,“ segir KK, „en svo verður platan leikin í heild sinni með þessum frá­bæru tón­list­ar­mönnum: Eyþór Gunn­ars­son á hljóm­borð, Gummi Péturs á gítar, Þor­leifur Guðjóns á bassa, Sig­tryggur Baldurs og Matti Hemstock tromma og leika á alls konar áslátt­ar­dót, Ellen systir syngur nokkur lög og svo spjöllum við smá á milli laga eins og gengur og ger­ist. Það er mikil til­hlökkun hjá okkur og við erum byrjuð að æfa og slípa lögin til. Svo bið ég ykkur öllum vel að lifa og taka vel á móti sumr­inu, í Guðs friði, KK.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár