Yfirlæknir um ópíóðafaraldurinn: „Þetta voru bara dópsalar í jakkafötum“

Yfir­læknir bráða­móttöku Land­spítala – háskóla­sjúkrahúss, Hjalti Már Björnsson, segir að læknar í Banda­ríkjunum hafi verið miklu líklegri til að skrifa út morfínlyf fyrir fólk en læknar á Íslandi. Hann segir að sala og markaðs­setning sumra lyfja­fyrirtækja á morfín­lyfjum sé glæp­samleg.

Segir háttefni lyfjafyrirtækja hafa verið glæpsamlega
Segir háttefni lyfja­fyr­ir­tækja hafa verið glæp­sam­lega Hjalti Már Björns­son, yfir­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, segir að sala- og mark­aðs­setn­ing banda­rískra lyfja­fyr­ir­tækja á ópíóðum hafi í ein­hverjum til­fellum verið glæp­sam­leg.

Hjalti Már Björnsson, yfir­læknir á bráða­móttöku Land­spítala –háskóla­sjúkrahúss, segir að forsvars­menn bandarískra lyfja­fyrirtækja sem markaðs­settu og seldu ópíóða (morfíns­skyld verkjalyf) með óábyrgum hætti séu í reynd ígildi „dópsala í jakka­fötum“. „Það er augljós staðreynd í dag að markaðs­setning ópíóða í tengslum við Oxycontin-faraldurinn í Banda­ríkjunum var hreinlega glæp­samleg. Það var hreinlega logið að lækna­stéttinni að kominn væri á markað nýr flokkur ópíóða sem væru ekki ávana­bindandi og að þess vegna ættu læknar að ávísa þeim. Það var beinlínis sagt við lækna að það væri vanræksla og ill meðferð að meðhöndla ekki verkina. Nú vitum við að það er hrein og klár lygi hjá þessu fyrirtæki sem markaðs­setti OxyContin. Mér finnst þetta alltaf vera gömul ábending um það að þegar maður er að hugsa um að gera eitthvað, þá eigi maður ekki að hlusta á þann sem hefur hag af því að selja vöruna,“ segir Hjalti. 

Talið er að samtals …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • You can dress a sewer rat in a suit, he's still a sewer rat, just in a suit
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Og að baki þeirra stóðu Bisnesmenn sem vissu hvað þeir vildu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Lífeyris­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Lífeyris­sjóðirnir sem fjárfestu í Actavis þegar fyrir­tækið var stórtækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkjunum segjast ekki hafa vitað um skaðsemi og villandi markaðs­setningu morfín­lyfjanna. Íslenskir lífeyris­sjóðir högnuðust um 27 milljarða þegar þeir seldu fjár­festingar­félagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar hlutabréf í Actavis árið 2007, eftir að fyrir­tækið var farið að selja morfínlyf í stórum stíl.
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­ursins

Íslenska lyfja­fyrirtækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóðatöflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúmlega þrjá milljarða taflna. Í byrjun febrúar var greint frá því að fyrir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í ríkinu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylkinu. Eigandi Actavis-félaganna í dag, Teva, viðurkennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæturnar.
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heimilis­lækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynntist OxyContin þegar maðurinn hennar var krabbameins­sjúklingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig langvinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa morfín­lyfjum fyrir samkvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir konunnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því fráhvörfin séu „viðbjóður“.

Mest lesið undanfarið ár