Geta ekki krafist mútugróða Samherja fari Namibíumál fyrir dóm

Íslensk stjórn­völd hafa í ald­ar­fjórð­ung hunsað ítrekuð til­mæli um að taka á erlendum mútu­brotum í sam­ræmi við lof­orð. Tafirnar valda því að ekki er hægt að leggja hald á ávinn­ing mútu­brota.

Geta ekki krafist mútugróða Samherja fari Namibíumál fyrir dóm
Undir grun Bæði Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í Namibíu, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, eru grun­aðir um mútu­brot. Esau fyrir að þiggja þær og Þor­steinn fyrir að greiða þær.

„Efni frum­varps­ins er að mestu laga­tækni­legs eðlis,“ sagði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra er hann mælti fyrir frum­varpi um breyt­ingu á íslenskum hegn­ing­ar­lögum sem fjalla um erlend mútu­brot, á Alþingi í gær. 

Þær fel­ast meðal ann­ars í því að nú verður allt að sex ára fang­els­is­refs­ing við brotum eins og þeim sem starfs­menn Samherja hafa verið sak­aðir um að fremja í Namibíu: Að bera mútur á full­trúa erlendra ríkja; stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn eða fyr­ir­svars­menn opin­berra fyr­ir­tækja. Hvort sem er beint eða í gegnum milli­lið. Refsiramm­inn er nú fimm ár. Frum­varpið gerir einnig ráð fyrir því að að brot lög­að­ila, fyr­ir­tækja eða félaga, á lög­unum fyrn­ist á tíu árum, en ekki fimm árum eins og nú er. 

„[M]unu áhrif þess eflaust verða til þess að styrkja íslensk stjórn­völd í bar­átt­unni gegn mútu­greiðslum til erlendra opin­berra starfs­manna í alþjóða­við­skiptum,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Viðbragð við pressu OECD

Þær breyt­ingar sem ráð­herra dóms­mála mælti fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár