Valdi hamingjuna eftir sjálfsvígstilraun vegna ástarsorgar

Sigríður Klin­gen­berg. Sigga Kling. Hún hefur eins og margir siglt í gegnum lífs­ins ólgu­sjó og vildi ekki lifa lengur þegar hún gekk í gegnum mikla ást­ar­sorg á ung­lings­ár­unum. Hún fann síðan eigin leiðir til að finna ham­ingj­una og í dag ráð­leggur hún fólki hvernig eigi að gera slíkt hið sama.

Valdi hamingjuna eftir sjálfsvígstilraun vegna ástarsorgar

„Ég lenti í mik­illi ást­ar­sorg þegar ég var ung og varð mjög óham­ingju­söm. Mér fannst þetta líf vera einskis virði. Ástin er kannski ofmetin í öllum ást­ar­sögum og alls staðar í kringum mann; sér­stak­lega þegar maður er ungur og heldur að maður sé ást­fang­inn. Þá sér maður bara ekk­ert annað og manni finnst vera svo mikið til­gangs­leysi í hlut­unum. Það þarf að kenna manni kannski meira um ást­ina þegar maður er í skóla því að það lesa nátt­úr­lega allir um hvað hún er fal­leg, dásam­leg og dýr­leg.

Ég fór í voða­lega sjálfs­vor­kunn. Mér fannst ég vera eina mann­eskjan í heim­inum sem hefði lent í svona ógeðs­lega erf­iðu ást­ar­sorg­ar­tíma­bili. En þetta er svo erfitt fyrir unga fólkið okkar og sér­stak­lega drengi og það er bara einum of mikið um það að ungt fólk svipti sig lífi út af akkúrat svona.“

Sigríður Klin­gen­berg var svo óham­ingju­söm í tengslum við ást­ar­sorg­ina …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár