„Svona lífsreynsla markar mann fyrir lífstíð og skilur eftir ör á sálinni“

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir segir að sam­band hennar við fjalla­leið­sögu­mann hafi verið hennar „þyngsti bak­poki og hæsta fjallið að klífa“.

„Svona lífsreynsla markar mann fyrir lífstíð og skilur eftir ör á sálinni“
Ein mesta afreks­kona lands­ins Vilborg varð fyrst íslenskra kvenna til að klífa hátind Ever­est­fjalls árið 2017 og gekk ein þvert yfir Suð­ur­skauts­landið. Mynd: vilborg.is

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, sem hefur bæði gengið á skíðum þvert yfir Suð­ur­skauts­landið og klifið á hátind Everst-fjalls, segir að sam­band hennar við fjalla­leið­sögu­mann, sem önnur kona ræddi um í gær­kvöldi, hafi verið „þyngsti bak­pok­inn og hæsta fjallið að klífa“.

Vilborg Arna er ein þriggja kvenna sem ræddu um reynslu sína af ofbeld­is­sam­bandi við mann­inn á Facebook í gær­kvöldi. Vilborg studdi frá­sögn fyrstu kon­unnar í ummælum í gær, en í nýrri, opinni færslu á Facebook segir Vilborg sam­bandið hafa markað hana.

„Heim­il­is­of­beldi og hvers kyns ofbeldi í öllum sínum birt­ing­ar­myndum er þungt farg að bera fyrir þolendur slíkra mála, fjöl­skyldur og alla þá sem tengj­ast á einn eða annan hátt. Eins og margir vita nú þegar teng­ist ofbeld­is­mál sem er nú til umfjöll­unar í fjöl­miðlum mér og er ég ein af þeim konum sem um ræðir. Svona lífs­reynsla markar mann fyrir lífs­tíð og skilur eftir ör á sál­inni. Með aðstoð góðs fólks og tím­anum grynnka örin þó þau hverfi kannski aldrei alveg. Minn bak­poki er ansi þungur eftir lífs­reynslu síð­ustu ára og hefur markað mig á ýmsan hátt þó ég beri það ekki utan á mér. Eins hefur þetta haft afleið­ingar sem hefur tekið tíma að vinna úr og sú vinna heldur auð­vitað áfram.“

Vilborg var sam­starfs­kona manns­ins og seg­ist hafa upp­lifað ofbeldi bæði í starfi og einka­lífi. „Ég styð þá frá­sögn sem fram hefur komið og hef staðið í sömu sporum bæði á meðan á sam­bandi okkar stóð og einnig á okkar sam­starfs­vett­vangi.“

„Minn bak­poki er ansi þungur eftir lífs­reynslu síð­ustu ára og hefur markað mig á ýmsan hátt þó ég beri það ekki utan á mér“
Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir

Hún bendir á að engin ein útgáfa sé til af þolendum. „Þolendur og ger­endur eru ekki steyptir í eitt fast mót eins og hefur skýr­lega komið fram á síð­ast­liðnum vikum. Það erum við sem sam­fé­lag að læra betur og betur. Það skiptir máli að standa saman og umvefja þolendur ásamt því að úrlausnir séu til staðar fyrir ger­endur.“

Þá hafi hún fengið hvatn­ingu af vakn­ingu í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni. „Fyrir mig per­sónu­lega hefur sú vakn­ing sem hefur átt sér stað að und­an­förnu skipt miklu máli og það er mik­il­vægt að við höldum áfram á þeirri braut. Ég mun leggja mitt á vog­ar­skál­arnar þegar kemur að þeirri umræðu.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Þið hafið nú klifið þann tind sem örugglega virtist ókleyfur, og það er að opna umræðuna á þennan persónulega hátt. Þið styðjið með því annað fólk sem býr eða búið hefur við heimilisofbeldi til að sjá að það er stuðningur á þeirri leið, sem betur fer, vaxandi stuðningur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár