Leiklistarhátíð, handverksmarkaður og sælgæti

Stundar­skrá dagana 26. nóvember til 9. desember.

Bókverkasýning nemenda við Listaháskólann

Hvar? Bókasafn Lista­háskólans í Þverholti

Hvenær? Stendur til 29. nóvember

Aðgangs­eyrir? Ókeypis!

Sýning í tengslum við Reykjavík Art Book Fair 2021 þar sem skoða má bókverk sem nemendur Lista­háskólans hafa unnið síðasta áratuginn. Riina Paul Finns­dóttir, Sigurður Atli Sigurðsson og Olga Elliot tóku sýninguna saman.

Lókal – Alþjóðleg leiklistarhátíð

Hvar? Tjarnarbíó og víðar

Hvenær? 25. nóvember til 6. desember

Aðgangs­eyrir? Mismun­andi

Alþjóðleg leiklistar­hátíð í Reykjavík sem fagnar töfrunum við verk í vinnslu og allt það nýjasta í sprúðlandi sviðslista­senu er til sýnis. Verkin eru afar fjöl­breytt, allt frá síma­leikhúsi og mannyrkjustöð til rannsókna um af hverju konur ákveða að eignast ekki börn og heims­þekkta sviðslista­hópsins 600 Highwaymen. Samhliða hátíðinni verður einnig gefið út sýnisrit sviðs­handrita, Syrpa.

Spilasmiðja

Hvar? Borgar­bókasafnið Úlfars­árdal

Hvenær? 4. desember kl. 13–15 

Aðgangs­eyrir? Ókeypis!

Spila­vinir standa fyrir fjölskyldu­vænni spila­stund þar sem fjöldinn allur af spilum og leikjum verða í boði. Spilin er svo hægt að taka að láni. 

Tove

Hvar? Bíó Paradís

Hvenær? Ýmsir tímar

Aðgangs­eyrir? 1.690 krónur

Ævisöguleg kvikmynd byggð á lífi hinnar ástsælu Tove Jansson, sem best er þekkt fyrir að vera höfundur Múmínálfa. Kvik­myndin er framlag Finnlands til Óskars­verð­launanna.

Lista- og handverksmarkaður Gilfélagsins

Hvar? Deiglan, Lista­gilið á Akureyri

Hvenær? 4. og 5. desember kl. 12–17.  

Aðgangs­eyrir? 1.690 krónur.

Lista- og handverks­messa, þar sem gestum og gangandi gefst færi á að kaupa verk beint af lista­fólki.

Konfekt, súkkulaði og sælgæti

Hvar? Norræna húsið

Hvenær? 4. desember kl. 15

Aðgangs­eyrir? Ókeypis en þarf að panta

Silja Knudsen og Helga Haralds­dóttir kynna girnilegar uppskriftir sem gleðja bragð­laukana yfir jólin. Konfekt, súkkulaði og sælgæti í boði. Gest­gjafar árétta þó að hnetur geti leynst í veitingunum.

Bókaspjall

Hvar? Bókasafn Kópavogs

Hvenær? 30. nóvember kl. 20

Aðgangs­eyrir? Ókeypis en skráning er nauðsynleg

Rithöfundarnir Hildur Knúts­dóttir, Friðgeir Einarsson og Hall­grímur Helgason ræða nýjar skáldsögur sínar og lesa upp. Guðrún Sóley Gests­dóttir stýrir umræðum.

Lífríki í myrkri

Hvar? Myrkra­verk gallery á Skólavörðu­stíg

Hvenær? 27. nóvember–1. desember 

Aðgangs­eyrir? Ókeypis!

Myndlistar­konan Ágústa Björns­dóttir opnar sýningu sína, Lífríki í myrkri, þar sem leikið er á mörkum ljóss og myrkurs, illsku og kímnigáfu.

Emil í Kattholti

Hvar? Borgar­leikhúsið

Hvenær? Frá 4. desember

Aðgangs­eyrir? 5.990 kr.

Hin goðsagna­kennda persóna Astrid Lindgren, Emil í Kattholti, stígur á svið í Borgar­leikhúsinu frá og með 4. desember. Þórunn Arna Kristjáns­dóttir leik­stýrir verkinu.

Opin bók

Hvar? Edinborgar­húsið, Ísafirði

Hvenær? 27. nóvember

Aðgangs­eyrir? Ókeypis, en þarf að panta

Upplestrar­dagskrá á bókmennta­vökunni Opin bók í Edinborgar­húsinu. Höfundarnir sem lesa eru Fríða Ísberg, Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, Haukur Ingvarsson, Sölvi Björn Sigurðsson, Guðlaug Jóns­dóttir (Didda), Eiríkur Örn Norðdahl og Auður Jóns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár