Var smitaður hjá Gísla Marteini

„Smit­skömmin í lágmarki,“ segir Hall­grímur Helgason rithöfundur, sem var einn 72 Íslendinga sem greindust með Covid-19 í gær. Hann hvetur til bólu­setninga. „Guð blessi bóluefnin!“

Hallgrímur í vikunni
Hall­grímur í vik­unni Alls óaf­vit­andi var hann smit­aður af Covid-19 við útsend­ingu Vikunnar hjá Gísla Marteini um helg­ina. Mynd: RÚV

„Það fór ekki svo að Kóvíð konungur næði manni ekki inn í ríki sitt,“ skrifar Hall­grímur Helgason rithöfundur, sem fluttur var af slökkviliðs­manni á sóttvarnar­hótelið við Rauðarár­stíg í gærkvöldi, eftir að hafa greinst smitaður af Covid-19, einn 72 Íslendinga í gær. 

Alls eru 897 Íslendingar í einangrun í dag og 1.169 í sóttkví. Það flækir stöðuna hjá Hallgrími að hann var einn þriggja gesta í Vikunni hjá Gísla Marteini Baldurs­syni á RÚV á laugardags­kvöldinu, eins og hann lýsir á Facebook-síðu sinni.

„Vona svo bara að ég hafi ekki smitað neinn í settinu hjá honum Gísla Marteini. Þau eru þrjú komin í sóttkví mín vegna, hann sjálfur, Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir og Sóli Hólm, einkenna­laus sem betur fer, og smit­skömmin því í lágmarki. Aðrir sem ég hitti á föstu­daginn eru í smitgát. Allir neikvæðir að ég best veit,“ segir hann.

Ein­kenna­lausSessu­nautar Hall­gríms eru ein­kenna­lausir í sótt­kví.

Hall­grímur er „vel flensaður og slappur en þó enn með bragð- og lyktar­skyn“, „enda tvívarinn með Astra Zeneca síðan í sumar,“ eins og hann segir. 

Af þeim 72 sem greindust smitaðir í gær voru tæp 40% ekki bólusett, en það er mun hærra hlutfall en fjöldi óbólusettra í samfélaginu segir til um. 76% lands­manna eru bólu­settir og 89% full­orðinna.

Hall­grímur eggjar alla landsmenn að láta bólusetja sig. „En við ykkur sem enn eigið eftir að láta bólusetja ykkur segi ég: Gerið það strax!“ segir hann og hnykkir út: „Guð blessi bóluefnin!“

Hall­grímur tekur sérstak­lega fram að þau sem komu í útgáfu­teiti hans á fimmtudag þurfi ekki að bregðast við, þar sem línan sé dregin við föstudags­morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár