Félag Helga greiddi 300 milljónir fyrir DV

Félagið Frjáls fjöl­miðlun, sem fjár­magnað var fjár­festingar­félagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar, seldi DV á 300 milljónir króna. Kaupandi var félag Helga Magnússonar fjár­festis. Frjáls fjöl­miðlun veitti 150 milljóna króna lán sama ár og viðskiptin áttu sér stað.

Fengu um 1/3 til baka
Fengu um 1/3 til baka Miðað við árs­reikn­ing Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf. fékk félagið um 1/3 hluta til baka af því sem fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hafði lánað inn í fyr­ir­tækið. Mynd: btb.is

Frjáls fjöl­miðlun, fyrr­verandi eigandi DV og DV.is, seldi fjölmiðlinn fyrir 300 milljónir króna. Samhliða veitti félagið 150 milljóna lán til ótilgreinds aðila en DV og tengdar eignir voru einu eignir félagsins. Kaupandi DV var félagið Torg ehf. sem Helgi Magnússon, eigandi Frétta­blaðsins, á. Þetta kemur fram í ársreikningi Frjálsrar fjöl­miðlunar ehf. sem nýlega var skilað til ársreikninga­skrár. Líklegt má telja að umrætt 150 milljóna króna lán hafi verið seljendalán til félags Helga. 

Aðspurður um viðskiptin með DV og kaup­verðið segir Helgi í sms-skila­boðum í svari til blaða­manns Stundarinnar að hann tjái sig ekki við aðra fjölmiðla. „Ég tjái mig ekki við aðra fjölmiðla.“ 

Hafnaði 100 millj­óna kaup­verðiHelgi Magn­ús­son hafn­aði nýlega 100 millj­óna króna til­boði í DV og DV.is. Miðað við kaup­verðið sem hann greiddi fyrir blaðið þarf það ekki að koma á óvart.

Viðskiptin tengjast líklega deilum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eignarhald DV

FréttirEignarhald DV

Novator sagði ósatt um lán til Frjálsrar fjöl­miðlunar í rúm tvö og hálft ár

Fjár­festingar­félagið Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfs­sonar, veitti fjöl­miðlum ítrekað rangar upplýsingar um 745 lán fyrir­tækisins til fjölmiðla­fyrirtækis. Ragnhildur Sverris­dóttir, fyrr­verandi upplýsinga­trúi Novator, hætti þar í janúar. Andrés Jónsson segir að eitt það versta sem komið getur fyrir almanna­tengil sé að segja fjöl­miðlum ósatt.
FréttirEignarhald DV

Neituðu því að Björgólfur væri bakhjarl DV: „Lítið um skjal­festar heimildir fyrir því sem ekki er“

Eigandi DV vildi ekki greina frá því hver lánaði félagi sínu tæpan hálfan milljarð til að fjármagna taprekstur. Talskona Björgólfs Thors Björgólfs­sonar neitaði því að hann væri lánveit­andinn. Samkeppnis­eftirlitið hefur birt upplýs­ing­arnar vegna samruna eigenda DV og Frétta­blaðsins. Þar kemur í ljós að Björgólfur Thor stóð að baki útgáfunni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár