„Það verður ekkert eftir hér í sveitarfélaginu“

Slát­ur­skipið Norwegian Gannett kom til Tálkna­fjarðar og slátr­aði 500 tonnum af eld­is­laxi fyrir Arctic Fish. Laxinn var fluttur beint úr landi og á markað í Evrópu sem þýðir að sveit­ar­fé­lög á Vest­fjörðum verða af afla­gjöldum, hafn­ar­gjöldum og óbeinum störfum við að vinna lax­inn. Rebekka Hilm­ars­dóttir, bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar, er ósátt við þessa notkun á slát­ur­skip­inu.

„Það verður ekkert eftir hér í sveitarfélaginu“

„Við erum ekki ánægð með þessa ákvörðun fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir bæj­ar­stjór­inn í Vest­ur­byggð, Rebekka Hilm­ars­dóttir, aðspurð um hvað henni finnst um það að lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish frá Ísafirði hafi notað slát­ur­skipið Norwegian Gannet til að slátra upp úr kvíum sínum í Tálkna­firði nú í októ­ber. Skipið slátrar eld­is­laxi beint upp úr sjó­kvíum og siglir svo með hann í verk­smiðju í Hirts­hals í Danmörku þaðan sem lax­inum er komið á markað.

„Þetta eru nokkrar millj­ónir sem sveit­ar­fé­lagið verður af vegna þessa“
Rebekka Hilm­ars­dóttir

Samtals slátr­aði Norwegian Gannet eld­is­laxi sem varð að 500 tonnum af slægðum fiski og flutti skipið afurð­irnar beint úr landi án þess að afl­inn kæmi nokkru sinni á land á Íslandi. Um er að ræða afla­verð­mæti fyrir á að giska 400 til 500 millj­ónir íslenskra króna. „Við höfum haft áhyggjur af því að þessar aðstæður gætu verið að skap­ast,“ segir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár