Nóbelsverðlaun í hagfræði: Sýndi að hækkun lágmarkslauna fækkaði ekki störfum

Þrír hag­fræð­ingar fá nóbels­verð­launin í ár fyrir að þróa til­raunir í hag­fræði, ekki síst á sviði kjara­rann­sókna. Nið­ur­stöður einnar rann­sókn­ar­innar gekk gegn hefð­bundnum kenn­ingum um að hækkun lág­marks­launa myndi valda atvinnu­leysi.

Nóbelsverðlaun í hagfræði: Sýndi að hækkun lágmarkslauna fækkaði ekki störfum
Verð­launa­hafar nóbels­verð­launa í hag­fræði David Card hjá Berkeley-háskóla, Joshua D. Angrist hjá MIT og Guido W. Imbens hjá Stanford hafa verið sæmdir nóbels­verð­launum í hag­fræði fyrir rann­sóknir á til­raunum í raun­að­stæðum. Mynd: AFP / Claudio BRESCIANI

Hand­hafar nóbels­verð­laun­anna í hag­fræði 2021 eru þrír hag­fræð­ingar sem hafa verið leið­andi í því að leiða hag­fræði­legan sann­leika úr raun­að­stæðum, eða í reynd hag­fræði­legum til­raunum þegar tekin er ákvörðun um að breyta aðstæðum á einum stað en ekki öðrum.

Sænska nóbels­nefndin til­kynnti um val sitt rétt í þessu. Hag­fræð­ing­arnir, David Card, Johshua D. Angrist og Guido W. Imbens, starfa allir við banda­ríska háskóla, en Imbens er fæddur í Hollandi og Angrist í Kanada. Þeir eru allir vinir, en fá verð­launin fyrir fram­lag í sitt hvoru lagi á svip­uðu sviði.

Hærri lágmarkslaun þýddu ekki meira atvinnuleysi

Meðal þekktra nið­ur­staðna af rann­sóknum þre­menn­ing­anna er  sam­an­burð­ar­rann­sókn á hag­rænum áhrifum þess að hækka lág­marks­laun. Samkvæmt hag­fræði­kenn­ingum sem kenna mætti við frjáls­hyggju hefur skað­leg áhrif fyrir launa­fólk að hækka lág­marks­laun, meðal ann­ars vegna þess að launa­hækk­unin leiði til auk­ins kostn­aðar fyrir fyr­ir­tæki, sem aftur segi upp starfs­fólki og þar með auk­ist atvinnu­leysi, með nei­kvæðri heild­ar­nið­ur­stöðu. Rannsókn Davids Card sýndi fram á að þessi „við­tekna hug­mynd“ væri röng, þegar hann rann­sak­aði raun­að­stæður við það að eitt ríki, New Jersey, hækk­aði lág­marks­laun úr 4,25 doll­urum í 5,05 doll­ara, á meðan annað ríki, Penn­syl­vania, gerði það ekki. Rannsókn Cards í sam­starfi við hag­fræð­ing­inn Alan Krueger sner­ist um að kanna starfs­að­stæður og starfs­hlut­fall starfs­fólks í 400 skyndi­bita­stöðum í ríkj­unum tveimur.

Nið­ur­stöð­urnar tengj­ast einu helsta þema þjóð­fé­lags­um­ræðu á Íslandi, eins og í mörgum öðrum sam­fé­lögum, sem snýst um áhrif þess að hækka lægstu laun. Þannig var­aði for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins við því í fyrra að launa­hækk­anir í því árferði sem þá var, myndu auka atvinnu­leysi. Á Íslandi hefur kjarni umræð­unnar þó snú­ist um að launa­hækk­anir geti aukið verð­bólgu, þegar laun­þegar auka eft­ir­spurn eftir vörum og þær hækka í verði fyrir vikið.

Lykilspurningar um orsakasamhengi

Kjarninn í fram­lagi Angrist og Imbens snýr að því að sund­ur­greina orsaka­tengsl frá til­fallandi þróun þegar inn­grip verða í hag­kerf­inu. Áskorun hag­fræð­inga er meiri en ann­arra vís­inda­manna, þar sem þeir geta ekki haft stjórn á öllum breytum líkt og til­rauna­að­ferðin kallar á.

„Rann­sóknir þeirra hafa bætt umtals­vert getu okkar til þess að svara lyk­il­spurn­ingum um orsaka­sam­hengi, sem hefur orðið til mik­illa hags­bóta fyrir sam­fé­lagið,“ segir í umsögn nóbels­nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár