537. spurningaþraut: Í fyrsta sinn er hægt að fá lárviðarstig með eikarlaufum!

537. spurningaþraut: Í fyrsta sinn er hægt að fá lárviðarstig með eikarlaufum!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir dýrið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á einni lít­illi plánetu í sól­kerfi okkar háttar svo að þar er meira en 400 gráðu hiti á þeirri hlið sem snýr að sólu en 180 gráðu frost á hlið­inni sem snýr frá sól­inni. Hvaða pláneta er þetta?

2.  Plánetan er eins og aðrar í sól­kerfi nefnd eftir grískum eða róm­verskum guði eða gyðju. Hvað var helsta hlut­verk þess guðs sem þessi pláneta heitir eftir?

3.  Gráð­urnar, sem ég nefndi áðan, eru mældar á kvarða sem kenndur var við stjörnu­fræð­ing­inn, efna­fræð­ing­inn og stærð­fræð­ing­inn Celsius. Hverrar þjóðar var Celsius?

4.  Celsius-kvarð­inn er ekki eini kvarð­inn sem not­aður er eða hefur verið not­aður til að mæla hita og kenndur við ein­stak­ling. Nefnið að minnsta kosti tvo aðra. Þið megið nefna eins marga og þið viljið, en fáið ekki stig (og þá aðeins eitt) nema fyrir tvö nöfn. En ef þið hafið rétt öll sjö nöfnin sem ég veit um, þá fáiði lár­við­ar­stig með eik­ar­laufum!

5.  Í nokkur ár framan af tíunda ára­tug síð­ustu aldar var starf­andi hljóm­sveit sem hét Plá­hnetan. Prímus mótor í þeirri hljóm­sveit var söngv­ari sem var nú og er kunn­ari fyrir söng sinni með annarri — og lang­líf­ari — dæg­ur­laga­hljóm­sveit af vand­aðra tag­inu. Hver var söngv­ari Plá­hnet­unnar?

6.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Íran?

7.  Katrín Jak­obs­dóttir varð ráð­herra fyrst árið 2009. Hvaða ráð­herra­emb­ætti tók hún þá við?

8.  „Ponja“ er nepalska orðið yfir bambus. Það er líka notað, örlítið breytt, um ákveðið dýr. Hvaða dýr?

9.  Hvað heitir ann­ars höf­uð­borgin í Nepal?

10.  Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson og Margeir Pét­urs­son voru (og eru) allir kunnir kappar í ... hvaða grein?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar er ljós­myndin hér að neðan tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Merkúr.

2.  Sendi­boði.

3.  Sænskur.

4.  Fahren­heit, Kelvin, Réamur, Rømer, Rankin, Newton, Delisle. Þið megið sem sé sæma ykkur lár­við­ar­stigi með eik­ar­laufum ef þið höfðuð öll sjö nöfnin rétt!

5.  Stefán Hilm­ars­son.

6.  Teheran.

7.  Mennta­mála­ráð­herra.

8.  Panda.

9.  Katmandú.

10.  Skák.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Komódo dreki.

Neðri myndin er frá Stokk­hólmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár