Dívur, lönd og lendar

Stund­ar­skrá dag­ana 30.sept­em­ber til 7.októ­ber

Dívur, lönd og lendar

Sundbíó

Hvar? Sund­höllin

Hvenær? 1. októ­ber kl. 19.30

Aðgangs­eyrir? 2.900 kr. 

Sundbíó hefur svo sann­ar­lega fest sig í sessi sem einn af sér við­burðum RIFF og í ár verður engin breyt­ing þar á. Föstu­dags­kvöldið 1. októ­ber kl. 19.30 verður hægt að hreiðra um sig í laug­inni og horfa á költ-klassík­ina The Life Aquatic with Steve Zissou – Á sjó með Steve Zissou.

Pétur og úlfurinn í Hörpu

Hvar? Harpa

Hvenær? 3. októ­ber kl. 16.

Aðgangs­eyrir? 2000 kr. fyrir full­orðna og 500 kr. fyrir börn

Kamm­er­sveit Reykja­víkur leikur Pétur og úlfinn eftir Prokofíev í Norð­ur­ljósum í Hörpu. Pétur og úlf­ur­inn eftir Prokofíev hefur fangað ímynd­un­ar­afl barna, kyn­slóð fram af kyn­slóð. Verkið  um krakk­ann upp­á­tækja­sama, árans úlfinn og dýrin í sveit­inni er einnig í upp­á­haldi hjá mörgum full­orðnum, þar með töldum með­limum Kamm­er­sveitar Reykja­víkur. Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir mun leiða börnin inn í sög­una og kynna hljóð­færin fyrir þeim.

Friðrik Ómar 40 ára

Hvar? Harpa

Hvenær? 4. októ­ber

Aðgangs­eyrir? 3.990–7.990 kr.

Í til­efni af fer­tugs­af­mæli Friðriks Ómars, þann 4. októ­ber næst­kom­andi, ætlar hann að stíga á svið í Eldborg ásamt hópi vina og sam­starfs­manna og skauta í gegnum efn­is­skrá sem hann hefur valið sér­stak­lega af þessu til­efni. Friðrik ætlar að hleypa söngv­ar­anum út með dassi af tón­leika­hald­ar­anum og fá til sín marga gesti.

HELLABÍÓ

Hvar? Rauf­ar­hóls­hellir

Hvenær? 6. októ­ber kl. 18.

Aðgangs­eyrir? 5.900 kr.

Hefur þig ein­hvern tíma langað til að fara á bíó­sýn­ingu í iðrum jarðar? Í ár getur þú skellt þér í ein­staka upp­lifun í Rauf­ar­hóls­helli þar sem költ-klassíkin Labyr­inth með David Bowie verður sýnd. Mjög tak­markað magn af miðum.

Sendið inn dívurnar

Hvar? Salurinn – tón­list­ar­hús

Hvenær? 2. októ­ber kl. 20.

Aðgangs­eyrir? 4.950–5.500 kr.

Stór­leikkon­urnar og söngdív­urnar Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir, Margrét Eir, Sigríður Eyrún og Þórunn Lár­us­dóttir færa tón­leika­gestum veislu af lögum úr söng­leikjum sem slegið hafa í gegn á Broadway og West End. Sum lögin á efn­is­skránni hafa þær nú þegar sungið á sviði í stórum leik­húsum, sum lögin eru á óska­lista þeirra um að fá að syngja ein­hvern tíma á þeim vett­vangi og önnur eru fyrir hlut­verk sem henta leikkon­unum bara alls ekki en lögin smellpassa svo þær syngja þau bara samt!

Hennar rödd – Ráðstefna um heilsu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

Hvar? Borg­ar­leik­húsið

Hvenær? 2. októ­ber kl. 11.

Aðgangs­eyrir? 1000 kr.

Félaga­sam­tökin Hennar rödd halda í ár ráð­stefnu um heilsu kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi. Við­fangs­efnið hefur ekki hlotið ítar­lega umfjöllun í sam­fé­lag­inu en á tímum Covid-19 kemur enn frekar í ljós að þörf er á frek­ari umræðu og rann­sóknum á þessu sviði. Meðal umræðu­efna er reynsla kvenna af erlendum upp­runa af heil­brigð­is­kerf­inu, aðgengi og menn­ing­ar­næmni innan þess ásamt geð­heilsu, kyn­heilsu og frelsis.

Ráð­stefnan fer fram á íslensku og ensku og verður túlkuð yfir á pólsku og ensku.

RÓMEÓ <3 JÚLÍA

Hvar? Borg­ar­leik­húsið

Hvenær? 1. októ­ber

Aðgangs­eyrir? 6.950–7.950 kr.

Íslenski dans­flokk­ur­inn færir okkur Rómeó <3 Júlíu, stór­brotið dans­verk Ernu Ómars­dóttur og Höllu Ólafs­dóttur í túlkun dans­ara Íslenska dans­flokks­ins. Um er að ræða frum­flutn­ing verks­ins á Íslandi. Sígildur harm­leikur Shakespe­ares er ræki­lega afbyggður og brot­inn niður í fjöl­margar frá­sagnir sem ger­ast sam­hliða svo úr verður ver­öld full af losta­fullri þrá, lík­ams­vessum og log­andi eld­tungum, sær­ing­ar­mætti öskurs­ins og heilandi ást – undir skæru og neon­lit­uðu hjarta.

Búkalú - Um lönd og lendar

Hvar? Frið­heimar Reyk­holti

Hvenær? 7. októ­ber kl. 20

Aðgangs­eyrir? 3.900 kr.

Búkalú - glæs­i­sýn­ing Mar­grétar Maack snýr aftur eftir barns­burð, heims­far­aldur og gott hlé. Með í för eru bestu, skemmti­leg­ustu, feg­urstu og fyndn­ustu kab­ar­ett­lista­menn lands­ins ásamt erlendum gestum. Sýningin blandar saman burleski, kab­ar­ett, dragi og sirkus svo úr verður ein­stakur full­orð­ins­kok­teill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár