404. spurningaþraut: Hvaða afkomendur á dýrið „pakistani“?

404. spurningaþraut: Hvaða afkomendur á dýrið „pakistani“?

Hér er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða starfi má ætla að karl­mað­ur­inn hægra megin á mynd­inni hafi gegnt?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét bassa­leik­ari Stuð­manna, sem lést fyrir nokkrum árum, langt fyrir aldur fram?

2.  Hvað hét bassa­leik­ari Duran Duran? Eft­ir­nafnið nægir EKKI.

3.  Friðrik I var kon­ungur bæði Þýska­lands og Ítalíu á 12. öld. Hann var síðan krýndur keis­ari Germ­anska veld­is­ins („hins heilaga róm­verska ríkis“). Friðrik þótti hraustur vel og sóp­aði að honum með áber­andi rautt skegg hans. Skeggið færði honum ákveðið við­ur­nefni. Hvað var það?

4.  751 ári eftir að Friðrik drukkn­aði í kross­ferð var við­ur­nefni hans notað við fræga aðgerð, sem mikið var lagt í, en mis­heppn­að­ist þó með öllu að lokum. Hvaða aðgerð var það?

5.  Hver samdi kamm­er­verkið Eine kleine Nachtmusik?

6.  21. sept­em­ber 1918 gerði Áslaug Þor­láks­dóttir Johnson svo­lítið. Hún var fyrsta konan sem gerði þetta á Íslandi en áður höfðu 80 karl­menn gert slíkt hið sama. Þetta er vitað vegna þess að hið opin­bera hélt nákvæma skrá yfir alla þá sem gerðu þetta. Hvað var það sem Áslaug gerði?

7.  Vinsæl dönsk sjón­varps­þátta­röð var fram­leidd á árunum 2013-16. Hún var meðal sýnd hér á landi. Þar sagði frá blaða­manni sem sér­hæfir sig í glæpa­málum, en eftir skilnað yfir­gefur blaða­mað­ur­inn Kaup­manna­höfn og sest að í Árósum sem reyn­ist úa og grúa af glæpa­lýð. Hvað heitir blaða­mað­ur­inn og þar með ser­ían?

8.  Hvað er skottís?

9.  Til­rauna­fé­lagið var stofnað í Reykja­vík árið 1905. Á hvaða sviði var því ætlað að gera til­raunir?

10.  Árið 2011 lést 97 ára gam­all karl sem hafði meðal ann­ars unnið sér það til frægðar að þýða öll leik­rit William Shakespe­ares á íslensku. Hvað hét hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Dýrið á mynd­inni hér að neðan var uppi fyrir um 50 millj­ónum ára og til­heyrði ætt sem nú er kölluð Pakicetidae. Nafnið gefur til kynna að dýrið bjó þar sem nú er Pakistan. Þetta var kjöt­æta. Stærstu dýrin af þess­ari teg­und voru á stærð við úlf en þrátt fyrir fremur renni­legt útlit gefa litlar loppur og þung bein til kynna að dýrið hafi hvorki verið lip­urt til sunds né fljótt að hlaupa. En þó gat þetta dýr af sér afkom­endur sem víða búa nú á dögum og eru ekki sér­stak­lega svip­aðir Pakicetidae í útliti. Hverjir eru þeir afkom­endur?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tómas Tómasson.

2.  John Taylor.

3.  Bar­barossa.

4.  Innrás Hitlers-Þýska­lands í Sov­ét­ríkin 1941.

5.  Mozart.

6.  Tók bíl­próf.

7.  Dicte.

8.  Þjóðdans.

9.  Spír­it­isma, sem fólst í að ná sam­bandi við dáið fólk.

10.  Helgi Hálf­dan­ar­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karl­mað­ur­inn á efri mynd­inni er greini­lega læknir.

Dýrið á neðri mynd­inni er for­móðir eða -faðir allra hvala í sjónum.

***

Hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár