403. spurningaþraut: Tiffany Case, Mary Goodnight, Christmas Jones, Domino Derval, Anya Amazova, Vesper Lynd og fleiri

403. spurningaþraut: Tiffany Case, Mary Goodnight, Christmas Jones, Domino Derval, Anya Amazova, Vesper Lynd og fleiri

Þraut frá í gær!

***

Fyrri aðal­spurn­ing:

Hvaða fáni sést hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Harry Callahan hét maður, býsna ill­skeyttur stundum. Hann kom fram á sjón­ar­sviðið 1971 en ekki hefur neitt frést af honum síðan 1988. Hann var reyndar aldrei þekkt­astur undir sínu fulla nafni, en á tíma­bili þekktu ansi margir það „gælu­nafn“ sem hann gekk undir. Og það var ...?

2.  Hver er vest­asti oddi Íslands?

3.  Hvaða heims­álfu til­heyrir ríkið Tonga?

4.  Honey Rider, Pussy Galore, Tiffany Case, Mary Goodnight, Christmas Jones, Domino Derval, Anya Amazova, Vesper Lynd, Strawberry Fields, Lucia Sciarra, Madel­eine Swann. Hvaða listi er þetta?

5.  „Þrúg­unnar reiði, þræta og óskipu­leg orð. Af sama meiði. Helsi og skiln­ings­leysi þess sem að ei skilur,“ Hvað er þetta?

6.  Hvað heitir höf­uð­borg Líbanons?

7.  Jakob Frímann Magn­ús­son Stuð­maður með meiru sat einu sinni á þingi sem vara­þing­maður. Fyrir hvaða flokk?

8.  Ljónið, Nornin og Skóg­ur­inn. Þetta er þrí­leikur eftir ... hvaða höf­und?

9.  Árið 1520 kom fram á sjón­ar­sviðið í Bæheimi fyr­ir­bærið „Joachimsthaler“. Hvað var það?

10.  Í des­em­ber 1996 hleyptu tveir ungir Banda­ríkja­menn, Sabeer Bhatia og Jack Smith, af stokk­unum nýju fyr­ir­tæki sem gerði not­endum kleift að nota þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins nán­ast hvar sem þeir voru staddir í ver­öld­inni, en það var nýlunda á þessu sviði. Eftir eitt ár voru not­endur orðnir 8,5 millj­ónir en þá var fyr­ir­tækið selt Microsoft fyrir 400 millj­ónir doll­ara. Notendur nú eru 400 millj­ónir um heim allan. Árið 2013 var skipt um nafn á fyr­ir­tæk­inu en þeir not­endur sem vildu gátu notað gamla nafnið áfram — og gera það margir. Hvað var það nafn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða nýlega sjón­varps­þætti er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Dirty Harry.

2.  Látra­bjarg.

3.  Eyjaálfu.

4.  Þetta eru nokkrar af hinum svo­nefndu Bond-stúlkum — það er að segja nöfn á per­sónum, ekki leik­endum.

5.  Upphafið á lag­inu Alelda með Nýdönsk.

6.  Beirut.

7.  Sam­fylk­ing­una.

8.  Hildi Knúts­dóttur.

9.  Mynt. Langa­langa­langa­langafi doll­ars­ins — má segja. En mynt dugar.

10.  Hotmail.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fáninn er sá hol­lenski.

Sjón­varps­s­er­ían er The Crown eða Krúnan.

Þarna sést per­sónan Díana und­ir­búa brúð­kaup sitt.

***

Og hér er hlekkur á ... jú, þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár