402. spurningaþraut: Hvar er frægasta verk arkiteksins Ieoh Ming Peis?

402. spurningaþraut: Hvar er frægasta verk arkiteksins Ieoh Ming Peis?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er tekin á stofn­fundi Samtaka her­náms­and­stæð­inga á Valhöll (Þing­völlum!) árið 1960. Á mynd­inni eru Guðgeir Magn­ús­son, Sigurjón Þor­bergs­son, Guð­bergur Þórisson og Kristín Jóns­dóttir. (Því miður ekki alveg öruggt að allir sjá­ist í sumum snjall­græjum.) En þá er ótalin ein mann­eskja á mynd­inni sem skrifar á rit­vél. Hver er það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir ljóðið sem byrjar svo: „Nú andar suðrið sæla vindum þýðum ...“

2.  Hver orti það?

3.  Hver var for­seti Banda­ríkj­anna árið 2000?

4.  En árið 1900, hver gegndi emb­ætt­inu þá?

5.  Anna frá Cleves og Catherine Parr — hvert er til­kall þeirra til frægðar?

6.  Hvaða hljóm­sveit gaf út plötur eins og Ég stend á skýi, Topp­ur­inn, Halló ég elska þig og Blóð?

7.  Ein banda­rísk leik­kona hefur verið til­nefnd til Ósk­arsverð­launa átta sinnum en aldrei fengið þau. Hvað heitir hún?

8.  Á hvaða fjalli er guð sagður hafa birt Móse boð­orðin tíu?

9.  Hver skrif­aði leik­ritið Músa­gildran?

10.  Kín­verskur maður að nafni Ieoh Ming Pei flutti 18 ára til Banda­ríkj­anna 1935 og gerð­ist arki­tekt. Langkunn­asta verk hans er eins konar við­bót við mjög þekkta bygg­ingu í evr­ópskri stór­borg, en við­bótin var vígð árið 1988. Hún var upp­haf­lega mjög umdeild, enda alls ekki í sama stíl og hin gamla þekkta bygg­ing, en nú orðið kunna flestir þó vel við þessa við­bót hans. Í hvaða borg var hún reist?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er að slást við karl­inn með rauðu hett­una?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ég bið að heilsa.

2.  Jónas Hall­gríms­son.

3.  Bill Clinton.

4.  McKinley.

5.  Þær voru tvær af sex eig­in­konum Hinriks átt­unda.

6.  Síðan skein sól.

7.  Glenn Close.

8.  Sína­ífjalli.

9.  Agatha Christie.

10.  París. Um er að ræða gler­p­íramída við Louvre-safnið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Vigdís Finn­boga­dóttir. Hún er önnur frá hægri að skrifa á rit­vél.

Á neðri mynd­inni er Batman að berja ein­hvern. Þið áttuð að þekkja hann af leð­ur­blöku­merk­inu á brjóst­kassa Batmans, þótt vissu­lega sjá­ist ekki mikið af því.

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár