401. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði!

401. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði!

Hér er 400. þrautin sem birt­ist í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú kvik­mynd sem skjá­skotið hér að ofan er út?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir for­stjóri flug­fé­lags­ins Play?

2.  Hvað heitir for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands?

3.  Hvaða ríki í Evrópu er það sem Frakkar kalla „Allemagne“?

4.  Hvað hét leik­stjóri kvik­mynd­ar­innar ET?

5.  Hveiti, smjör, mjólk og HVAÐ þarf til að slá í pönnu­kökur? Hér er ekki átt við bragð­efni eða neitt þvíum­líkt.

6.  Haustið 1938 var hald­inn fundur þáver­andi stór­velda í Evrópu þar sem Bretar og Frakkar féllust á kröfur Þjóð­verja um að ná yfir­ráðum yfir vænum hlut ákveð­ins Evr­ópu­ríkis. Hvað hét það ríki?

7.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Malí?

8.  Hvaða frum­efni er táknað með bók­stafnum O í lotu­kerf­inu?

9.  Á hvaða nesi stendur íslenski for­seta­bú­stað­ur­inn Bessa­staðir?

10.  Árið 1940 lögðu Þjóð­verjar undir sig meg­in­hluta Frakk­lands, þar á meðal París. Frakkar sem vildu ekki sætta sig við það köll­uðu sig „frjálsa Frakka“. Þeir lýstu því yfir að höf­uð­borg hins frjálsa Frakk­lands væri til­tekin borg í Afríku. Svo var þangað til 1943. Þá fluttu frjálsir Frakkar höf­uð­borg sína til ann­arrar borgar í Afríku, tölu­vert nær Evrópu þar sem stríðið geis­aði á fullu. Þessi seinni Afr­íku­borg var höf­uð­borg frjálsra Frakka þar til París var frelsuð 1944. Hvað hétu þessar tvær höf­uð­borgir frjálsra Frakka? Þið fáið stig ef þið getið nefnt aðra, en ef þið getið nefnt báðar, fáiði hið eft­ir­sótta lár­við­ar­stig!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fólkið á þess­ari mynd? Og já, þið þurfið að nefna þau bæði!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Birgir Jónsson.

2.  Drífa Snædal.

3.  Þýska­land.

4.  Spi­el­berg.

5.  Egg.

6.  Tékkóslóvakía.

7.  Afríku.

8.  Súrefni (oxygen)

9.  Álfta­nesi.

10.  Höf­uð­borgin 1940-43 var Brazzaville í Kongó, en sú síð­ari Alsír­borg. Nóg er að nefna aðra hvora eða báðar borg­irnar, ekki er nauð­syn­legt að vita hvor var höf­uð­borg á undan.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr kvik­mynd­inni A Clockwork Orange.

Neðri myndin sýnir þau Ólaf Darra og Ilmi Krist­jáns­dóttur í hlut­verkum sínum í sjón­varps­s­er­í­unni Ófærð.

Hér til hliðar má sjá þau ögn betur.

***

Og hlekkur á þraut 400.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár