388. spurningaþraut: Hver var — eða öllu heldur var EKKI — hertoginn af London?

388. spurningaþraut: Hver var — eða öllu heldur var EKKI — hertoginn af London?

Þriðju­dags­þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mynd­ina hér að ofan, sem kölluð er „bláa nekt­ar­myndin“?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Gaza er fjöl­menn­asta borg Palest­ínu­manna og er á sam­nefndu land­svæði. En hvað heitir fjöl­menn­asta borg Palest­ínu­manna á Vest­ur­bakk­anum svo­kall­aða?

2.  Árið 1955 bauð Elísabet Breta­drottn­ing manni nokkrum nafn­bót­ina „her­togi af London“ en sá tit­ill hafði aldrei verið til, og þótti þetta því ein­stakur heiður. Við­kom­andi hafn­aði að vísu heiðr­inum og því er eng­inn her­togi í London — þótt bíla­sala ein heiti víst þessu nafni. En hver var sá sem ekki vildi verða her­togi af London?

3.  Í ára­tugi var Þýska­landi skipt milli aust­urs og vest­urs. Fyrir utan Austur-Berlín, hver er nú fjöl­menn­asta borgin í sam­ein­uðu Þýska­landi, sem áður var í Austur-Þýska­landi?

4.  Hverjir eru Major og Champ?

5.   Hvor stað­ur­inn er austar — Akureyri eða Vík í Mýrdal?

6.  Tímon var höfð­ingi í Aþenu á tímum Pelóps­skaga­stríðs­ins á fimmtu öld fyrir Krist, kunnur að mann­vonsku. Um svipað leyti var Gaius Coriolanus einn helstur valda­maður í Rómaborg en var rek­inn burt frá borg­inni, og sneri þá aftur fremstur í flokki í óvina­her.  Alllöngu síðar var róm­verski hers­höfð­ing­inn Titus Andronicus sagður hafa bland­ast í ill­skeytta valda­bar­áttu bræðra sem báðir vildu verða keis­arar. En hvað áttu þeir Tímon Aþen­ingur, Gaius Coriolanus og Titus Andronicus sam­eig­in­legt — annað en svona það sem aug­ljóst er (að þeir hafi verið karl­menn, etc)?

7.  Hvaða núver­andi þing­maður á Alþingi Íslend­inga hefur gegnt starfi mál­fars­ráðu­nautar frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins? — að vísu bara í hluta­starfi 1999-2003.

8.  Í hvaða borg er hið nýja torg kóngs­ins?

9.  Ísland hefur aldrei unnið Eurovision sem frægt er orðið, en tvisvar lent í öðru sæti. Annað land, sem hefur heldur aldrei unnið, hefur líka tví­vegis orðið númer tvö, en þar á ofan orðið tvisvar númer þrjú. Hvaða land er það?

10.  Alfreð Gíslason var einu sinni lands­liðs­þjálf­ari Íslands í hand­bolta karla og svo í rúman ára­tug þjálf­ari stór­liðs­ins Kiel í Þýska­landi. En hvaða lið þjálfar Alfreð núna?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Söng­konan á mynd­inni hér að neðan gift­ist fyrir örfáum dögum fast­eigna­sal­anum sínum. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hebron.

2.  Churchill.

3.  Leipzig.

4.  Hund­arnir hans Joe Biden.

5.  Akureyri.

6.  Shakespe­are skrif­aði um þá alla þrjá leik­rit, sem bera nöfn þeirra.

7.  Katrín Jak­obs­dóttir.

8.  Kaup­manna­höfn.

9.  Malta.

10.  Landslið Þýska­lands.

***

Og svörin við auka­spurn­ing­unum eru þau að Picasso mál­aði mál­verkið en Ariana Grande gifti sig.

***

Og þrautin þyngri frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár