382. spurningaþraut: „Jaffa appelsínur eru sætar og safaríkar“

382. spurningaþraut: „Jaffa appelsínur eru sætar og safaríkar“

Hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Hver mál­aði mál­verkið sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét mað­ur­inn sem varð for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands 10. maí 1940?

2.  Wilhelm Steinitz hét Aust­ur­rík­is­maður einn sem varð árið 1886 fyrsti opin­beri heims­meist­ar­inn á til­teknu sviði og hélt titl­inum þar til 1894 þegar hann glat­aði honum til Þjóð­verj­ans Emanuels Laskers. Í hverju voru þeir heims­meist­arar?

3.  Eftir að hafa unnið góðan sigur í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reyjavík árið 2010 lýsti Jón Gnarr því yfir að hann vildi aðeins starfa með þeim sem þekktu skikk­an­lega til ákveð­innar sjón­varps­s­eríu, sem var í miklu upp­á­haldi hjá Jóni. Hvaða sería var það?

4.  Í hvaða borg ger­ist sú sjón­varps­s­ería?

5.  Ein fræg­asta söng­stjarna heims­ins um þessar mundir verður fer­tug þann 4. sept­em­ber næst­kom­andi. Hvað heitir hún?

6.  Fertugur verður líka á þessu ári afar vin­sæll spurn­inga­leikur, sem meðal ann­ars hefur verið gef­inn út í íslenskri útgáfu oftar en einu sinni. Hvaða leikur er það?

7.  Hvaða fljót fellur um Jökuldal á Aust­ur­landi?

8.  „Jaffa app­el­sínur eru sætar og safa­ríkar,“ sagði i einni af fyrstu sjón­varps­aug­lýs­ingum í íslenska sjón­varp­inu. Hvar er Jaffa?

9.  Fyrsti McDonald's ham­borg­ara­stað­ur­inn var opn­aður í Kali­forníu árið ... ja, hvaða ár? Var það 1930, 1940, 1950, 1960, 1970 eða 1980?

10.  Sögur herma að á níundu öld hafi kona nokkur kom­ist á stól páfa í Róm, dul­búin sem karl. Sögurnar eru því miður bara þjóð­sögur, en hvað á konan að hafa heitið?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Hvað heitir bíó­myndin frá 1951 sem sjá má mynd úr hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Churchill.

2.  Skák.

3.  The Wire.

4.  Baltimore.

5.  Beyonce.

6.  Trivial Pursuit.

7.  Jökulsá á Dal.

8.  Ísrael.

9.  1940.

10.  Jóhanna.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Málarinn sem spurt er um í þeirri fyrri var Juan Miro.

Kvik­myndin sem spurt er um í þeirri seinni er The African Queen eða Afr­íku­drottn­ingin.

***

Hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár