„Ég á kærasta, en ég vinn samt með öðrum“

„Þau hafa sýnt mér mikinn stuðning og mamma og pabbi eru bæði miklir femínistar og finnst þetta flott sem ég er að gera,“ segir Edda Lovísa Björgvins­dóttir sem fram­leiðir efni á OnlyFans. Margir nálgist klám án endur­gjalds á öðrum síðum á netinu og á þeim verstu sé myndum af íslenskum stúlkum á barns­aldri dreift.

Edda Lovísa Björgvinsdóttir
Edda Lovísa Björg­vins­dóttir Myndum af Eddu og tveimur öðrum var dreift í þeirra óþökk þegar Edda hafði aðeins verið í viku á OnlyFans. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fram­leiðsla á efni fyrir OnlyFans er tímafrek og flókin vinna sem krefst list­rænnar nálgunar. Mikill munur er á henni og kynlífi með maka. Þetta segir Edda Lovísa Björgvins­dóttir, sem stundar kynlífs­vinnu á síðunni OnlyFans.

Edda Lovísa er 20 ára og segist hafa alist upp víða, meðal annars í Banda­ríkjunum. „Mér gekk aldrei rosalega vel í skóla út af athyglis­bresti og lesblindu, þannig að ég passaði aldrei í vinnu sem maður þarf að fara í bóknám fyrir,“ segir hún. „Svo kynntist ég Ósk seint 2019, rétt áður en Covid byrjaði. Ég er með astma og í áhættu­hópi þannig að ég gat ekki unnið. Ósk fór að sýna mér þetta og segja frá vinnunni. Ég hugsaði strax að mig langaði að gera þetta og vera partur af svona vinnu og kynnast fólki. Svo fannst mér það ógeðslega gaman og var að fá mjög góð laun. Við fengum að ferðast til að …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynlífsvinna á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár